139. löggjafarþing — 61. fundur,  19. jan. 2011.

störf þingsins.

[14:09]
Horfa

Björgvin G. Sigurðsson (Sf):

Frú forseti. Ég tek undir það með hv. fyrirspyrjanda að mikil þörf er á margs konar átaki í atvinnumálum á Suðurnesjum. Sem betur fer er margt gott í ferlum og flest af því sem ríkisstjórnin lýsti yfir á nóvemberfundi sínum suður frá er ýmist komið til framkvæmda eða er í vinnsluferli. Í vinnsluferli er til að mynda samkomulag við Keili sem er burðarstoðin í háskólalífi og menntauppbygging á Ásbrú. Samkvæmt upplýsingum frá menntamálaráðherra ganga þær viðræður vel og hafa verið haldnir fundir á milli aðila. Nú er verið að ganga frá fjárfestingarsamningi út af stóru orkuverkefni í Helguvík sem mun skipta miklu máli. Þá afgreiddi þingið rétt fyrir jól lög um gagnaver sem gerir það að verkum að gagnaversuppbyggingin á Ásbrú heldur áfram af fullum krafti.

Eitt af því sem skiptir mjög miklu máli er að komin er niðurstaða milli samninganefnda Norðuráls og Orkuveitu Reykjavíkur. Samninganefnd Orkuveitunnar hefur skilað af sér niðurstöðum til stjórnar fyrirtækisins. Landsvirkjun hefur viljað koma með 60 megavött inn í Helguvíkurverkefnið og það eina sem stendur eftir er samningur á milli Norðuráls og HS Orku. Þar ber enn á milli en samningsvilji er til staðar og menn enn þá bjartsýnir á að það takist.

Hv. þingmaður spurði um Landhelgisgæsluna og flutning hennar suður eftir og mikill og þverpólitískur vilji er á bak við það að það gangi eftir. Gefin hafa verið út ákveðin fyrirheit og væntingar hafa kviknað um að sá tilflutningur gangi eftir. Kjördæmisráð Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi skoraði á laugardaginn á stjórnvöld að ljúka þeirri skoðun sem allra fyrst: Suðurnesjayfirlýsing ríkisstjórnarinnar vekur væntingar um að málið nái fram að ganga og hvetur kjördæmisráð stjórnvöld til að ljúka flutningi sem allra fyrst.

Við skulum nota þetta tækifæri í umræðunni í dag til að skora á hæstv. innanríkisráðherra að beita sér fyrir því að það verkefni sem honum var falið, að ljúka þessari athugun fyrir 1. febrúar, gangi eftir, (Forseti hringir.) það þarf ekki að taka marga daga að ljúka því. Síðan gangi flutningurinn fram af fullum krafti strax (Forseti hringir.) í kjölfar þess, um það hef ég góðar væntingar og vonir.