sameining ráðuneyta og svör við spurningum ESB.
Frú forseti. Varðandi fyrstu spurninguna, þ.e. að ríkisstjórnin hafi ákveðið að halda áfram sameiningarferli og leggja niður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið, þá hefur hún ekki ákveðið það. Ég vil líka minna á að þegar frumvarp til laga um breytingar á lögum um Stjórnarráð Íslands var til meðhöndlunar á sl. sumri og í frumvarpi sem ríkisstjórnin lagði fram þar — reyndar hafði ég tjáð athugasemdir mínar við tiltekin atriði í þeim efnum þannig að það lá ljóst fyrir — þá var þar lagt til, það var m.a. talið upp í frumvarpinu að þar ætti líka að taka inn stofnun atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins og að fella ætti niður stjórnsýsluheitið sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti. Þetta var í upphaflega frumvarpinu. Þegar Alþingi afgreiddi málið var þetta fellt út. Vilji Alþingis á þeim tíma fyrir því var því alveg skýr, þ.e. að í þessar aðgerðir yrði ekki ráðist. Ég tel að sú ákvörðun standi.
Ég vil í þessu sambandi líka minna á að það hefur komið upp og vakti athygli í þeirri umræðu að flokksráðsfundur Vinstri grænna í fyrravetur eða í janúar fyrir um ári síðan ályktaði að fresta skyldi áformum sem nefnd eru í samstarfsyfirlýsingu flokkanna um að fella út og leggja niður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið og sameina það öðru og ekki síst meðan Evrópusambandsumsóknarferlið stæði yfir þar sem mæddi mjög á þessum atvinnugreinum og vitað var og er, að nánast allar greinar sem heyra undir þessi ráðuneyti eru andvíg því Evrópusambandsferli sem í gangi er.
Að mínu viti liggur það síðan alveg ljóst fyrir að heimild til þess að fara í að sameina eða leggja niður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið og sameina það eða deila verkefnum þess upp í annað liggur ekki fyrir, hvorki af hálfu Alþingis né af hálfu stjórnarflokkanna.