sameining ráðuneyta og svör við spurningum ESB.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta svar. Það var mjög ítarlegt og kannski fullítarlegt vegna þess að honum gafst ekki tími til þess að svara hinu sem spurt var um og ég ætla þá bara að láta þær spurningar standa eftir.
Annars vegar: Gerðist það sem hefur spurst út að utanríkisráðuneytið hafi neitað að bera áfram í viðræðuferlinu, í rýnivinnunni, svör sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins við spurningum Evrópusambandsins?
Hins vegar: Er það álit ráðherrans að það sé vegna andstöðu hans við aðlögunarferlið, eins og hann sjálfur kallar það, að verið sé að ýta á eftir sameiningu ráðuneytanna?