erlendar fjárfestingar.
Frú forseti. Í fyrsta lagi held ég að hv. þingmaður verði að átta sig á því að það eru breyttir tímar í þessum efnum. Gamla hugmyndafræðin um að velja út einstaka aðila, veita þeim einkarétt til viðræðna og selja þeim svo orku í stórum stíl á lágu verði er að baki. Og það eru nákvæmlega hárréttar áherslur sem Landsvirkjun er að móta í þessum efnum, að fjölga þeim sem hún ræðir við og hafa úr fleiri kostum að velja, láta myndast samkeppni um að bjóða sem hæst verð fyrir orkuna. Ýmsir af þeim nýju aðilum, litlir og meðalstórir iðnaðarkostir sem núna eru í boði, eru tilbúnir til að greiða mun hærra verð en áður var hér samið um. Það er meginverkefni okkar að tryggja að við fáum vaxandi arð af þessum auðlindum og getum látið orkuverð á Íslandi fylgja hækkandi orkuverði úti í löndum.
Ég deili ekki þeirri skoðun að það eina sem skipti hagvöxt og viðgang hér máli séu einstök fjárfestingarverkefni. Það er vöxtur og viðgangur í hinu almenna atvinnulífi okkar sem fyrst og fremst mun drífa hagvöxt á Íslandi en að sjálfsögðu hafa slík einstök fjárfestingarverkefni sín áhrif og leggja með í slíkt eftir því sem þau falla til, en það er mikill misskilningur að leið Íslands út úr kreppunni sé alfarið bundin við það (Forseti hringir.) hvort hér komi inn eitt, tvö eða fleiri erlend fjárfestingarverkefni. Það er fyrst og fremst bundið við viðgang í okkar eigin almenna atvinnulífi.