139. löggjafarþing — 66. fundur, 27. jan. 2011.
tilkynning um dagskrá.
Klukkan þrjú í dag fer fram umræða utan dagskrár um HS Orku, stefnu og stjórnsýslu ríkisstjórnarinnar í málinu. Málshefjandi er hv. þm. Bjarni Benediktsson og forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.