139. löggjafarþing — 66. fundur,  27. jan. 2011.

framkvæmd kosningar til stjórnlagaþings, munnleg skýrsla innanríkisráðherra.

[11:33]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef um kostnað vegna kosninga til stjórnlagaþings nemur hann samtals 281.696.000 kr. og skiptist í launagjöld, ferðir, hugbúnaðargerð og aðra sérfræðiþjónustu, auglýsingar, prentun og ýmsan annan kostnað og greiðslu til sveitarfélaga. (Gripið fram í.) Þetta eru umtalsverðar upphæðir. Það eru 281.696.000 kr. Þetta eru þær upplýsingar sem ég hef frá ráðuneytinu um kostnaðinn.

Nei, við metum núna stöðuna í ljósi úrskurðar Hæstaréttar. Við erum hér með umræðu um hvernig við ætlum að bregðast við. Þá þarf að skilgreina ábyrgð hvers og eins og það erum við að sjálfsögðu að gera í okkar ráðuneyti. (Gripið fram í.) Ha? (Gripið fram í.) Þetta eru hlutir sem eru til skoðunar.