139. löggjafarþing — 66. fundur,  27. jan. 2011.

framkvæmd kosningar til stjórnlagaþings, munnleg skýrsla innanríkisráðherra.

[11:37]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Allt er þetta til að læra af og það munu menn eflaust gera í innanríkisráðuneytinu og í fjölmiðlum.

Hvað varðar kynningu á frambjóðendum: Fólk hefur misjafnar skoðanir á þessum málum. Mér þótti persónulega ráðuneytið standa sig gríðarlega vel við að sinna mjög erfiðu verkefni, það er mitt mat. En ekkert er svo gott að ekki megi bæta það og við eigum að sjálfsögðu að draga lærdóma af þessu og þar með þeim ábendingum sem hér koma fram eins og öðru.