139. löggjafarþing — 66. fundur,  27. jan. 2011.

framkvæmd kosningar til stjórnlagaþings, munnleg skýrsla innanríkisráðherra.

[15:01]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S):

Virðulegi forseti. Þetta mál sem við ræðum núna er fullkomið einsdæmi, grafalvarlegt mál eins og hæstv. innanríkisráðherra sagði hér áðan, mál sem lýtur að sjálfum grundvelli okkar lýðræðislega fyrirkomulags, sú staðreynd að almennar kosningar sem fram fóru á síðasta ári hafa núna verið dæmdar ógildar. Það er ekki hægt að hugsa sér meira áfall fyrir lýðræðisþjóð en að standa frammi fyrir slíkum veruleika og þess vegna verðum við að taka þessi mál alvarlega. Það á að spyrja þeirrar spurningar hver beri ábyrgðina og hver beri hina pólitísku ábyrgð því að það hlýtur að vera stóra spurningin sem við stöndum núna frammi fyrir á Alþingi. Hver ber hina pólitísku ábyrgð? (Gripið fram í.)

Hæstv. ráðherra fór yfir þessa spurningu. Hann svaraði henni mjög skýrt, það eru Hæstiréttur og hreppsnefndirnar. Hæstv. ráðherra fór hér yfir það og færði fyrir því rök að allir aðrir en stjórnvöldin í landinu bæru hina pólitísku ábyrgð. Það var Hæstiréttur vegna þess að það var umdeilanlegt hvernig hann komst að niðurstöðu, það var löggjafinn eins og það kæmi ekki hæstv. ráðherra nokkurn hlut við og síðan framkvæmdaraðilinn. Þá var talað um í einu slengi landskjörstjórn, sveitarfélögin og innanríkisráðuneytið. Þetta er forgangsröðunin.

Hæstv. ráðherra kvartaði síðan undan því í ræðu sinni áðan að hann hefði ekki almennilega haft tíma til að fara yfir þau mál sem hann vildi fara yfir. Ég held að hæstv. ráðherra hefði ekki þurft neinar 15 mínútur. Hann þurfti bara eina setningu. Erindi hæstv. ráðherra í þennan ræðustól var bara eitt, það að þvo af sér og ríkisstjórninni ábyrgðina af þessu máli. Hæstv. ráðherra gat bara komið hérna og sagt það sem í huga hans bjó sem var þetta: Jú, það var óskaplegt sem fór hérna úrskeiðis, það var alveg óskaplegt, en það kemur ekki ríkisstjórninni við. Það er allsherjarnefnd og það eru hreppsnefndirnar. Og það er Hæstiréttur sem ætti að líta í eigin barm.

Þetta var auðvitað ekki bara kattarþvottur, heldur virðist mér að hæstv. ráðherra hafi breytt sér í einhvers konar kattarþvottavél. Hann var önnum kafinn upp fyrir axlir við að útskýra fyrir okkur og þeim öðrum sem hlustuðu á þessa umræðu að þetta væri nú mál sem allir aðrir yrðu að skoða mjög rækilega og líta í eigin barm.

Vitaskuld fór ýmislegt úrskeiðis í framkvæmdinni eins og fram hefur komið, þessi lög voru þannig úr garði gerð að þau stóðust ekki. Þau voru með öðrum orðum í ósamræmi við annað það sem við erum að vinna með varðandi kosningalöggjöfina.

Kjarni málsins er bara sá að ríkisstjórnin sem þykist vilja axla ábyrgð, ríkisstjórnin sem talaði um það hér fyrir einu og tveimur árum að nú þyrfti að kalla menn til pólitískrar ábyrgðar, ríkisstjórnin sem þóttist ætla að boða nýja tíma, hún heykist á þessu öllu, hún þorir ekki að gangast við sinni eigin ábyrgð, hún er hér á harðaflótta og kemur í ræðustól dag eftir dag til þess eins að reyna að útskýra fyrir okkur og þjóðinni að hún beri ekki ábyrgð. Þetta er ekki (Forseti hringir.) stórmannlegt, þetta er aumingjalegt.