framkvæmd kosningar til stjórnlagaþings, munnleg skýrsla innanríkisráðherra.
Hæstv. forseti. Ég þakka þá ágætu umræðu sem nú hefur staðið frá kl. 11 í morgun. Hér hafa komið fram margar ágætar málefnalegar ábendingar. Aðrir hafa látið við það sitja að gefa okkur innsýn í pólitískt sálarlíf sitt, sem er fróðlegt út af fyrir sig.
Ég hóf þessa umræðu á því að segja að eðlilegt væri og nauðsynlegt að spyrja um ábyrgð og að allir þyrftu að axla ábyrgð og horfa í eigin rann. Ég vék að Hæstarétti í því efni, sagði að niðurstaða hans væri að sjálfsögðu endanleg og óvefengjanleg eðli máls samkvæmt þótt eðlilegt væri að ræða þær forsendur sem hann byggði úrskurð sinn á og þau lög sem hann studdist við, vegna þess að það má færa rök fyrir því að lögin, annars vegar kosningalögin og hins vegar lögin um stjórnlagaþingið, hafi verið óljós hvað þetta snertir.
Þá er ég kominn að öðrum þættinum hvað ábyrgðina snertir, það er Alþingi. Þá þurfum við að horfa til ferilsins alls frá því að lagafrumvarpið kom til þingsins, fékk þar umfjöllun í umræðu og síðan ítarlega umfjöllun í allsherjarnefnd Alþingis þar sem lagatextanum var breytt að ýmsu leyti og í góðri trú og frumvarpið síðar afgreitt frá þinginu með einu mótatkvæði. Í ljós hefur komið að á lagasetningunni voru ýmsir hnökrar sem þarf að lagfæra áður en boðað verður aftur til sambærilegra kosninga. Við eigum að draga þann lærdóm af þessu, að sjálfsögðu.
Í síðasta lagi vék ég að ábyrgð framkvæmdaraðilanna og horfði fyrst til sjálfs mín og ráðuneytis míns, þáverandi dómsmálaráðuneytis, sem stóð að hluta til að framkvæmdinni, að hluta var það landskjörstjórn og að einhverju leyti sveitarfélög. Dómsmálaráðuneytið taldi sig hafa stuðst við lagatextann, en við þurfum að horfast í augu við að hann var óljós um margt. Í umræðunni var sagt að ég hefði gagnrýnt embættismenn dómsmálaráðuneytisins. Það hef ég aldrei gert í þessari umræðu. Ég hef þvert á móti lagt áherslu á hve vel og samviskusamlega þeir stóðu að verki. Reyndar held ég að allir þeir sem komu að þessu hafi gert sitt besta.
Þetta er (Forseti hringir.) niðurstaðan. Við þurfum að draga réttan lærdóm af (Forseti hringir.) þessari reynslu, eins og hér hefur verið bent á, þannig að við séum (Forseti hringir.) tilbúin að takast á við nýjar kosningar.