HS Orka, stefna og stjórnsýsla ríkisstjórnarinnar í málinu.
Frú forseti. Þetta mál er orðið slíkt endemisrugl að maður veit ekki hvar maður á að byrja. En þessi ríkisstjórn, eins og margoft hefur komið fram, hefur í meira en ár haft öll tækifæri til þess að grípa inn í og annaðhvort beita lagaúrræðum, teldu menn sig hafa rök til þess, eða viðskiptalegum forsendum. Í átta mánuði var þetta fyrirtæki auglýst til sölu, HS Orka, eftir að, vel að merkja, það var úrskurður dómstóla að Reykjavík mætti ekki eiga hlut sinn í félaginu. Það var ekki svo að Reykjavíkurborg vildi losna við þetta, vildi einkavæða það, nei, það var úrskurður dómstóla. Það var því ekki um annað að ræða. Það varð átta mánaða söluferli. Þá var þetta oft rætt hjá ríkisstjórnarflokkunum. Samfylkingin vildi selja, það fór ekkert á milli mála þá, en reyndar var töluverð umræða í Vinstri grænum þar sem var krafa um að gripið yrði inn í og formanni þess flokks, hæstv. fjármálaráðherra, meira að segja veittur sérstakur frestur til að gera eitthvað í málinu. Hann gerði það ekki, hafði ekki áhuga. Sölufrestur rann út, það kom eitt tilboð, frá Magma. Hvað átti að gera? Menn vildu enn og aftur gefa ríkisstjórninni séns, þannig að Reykjavíkurborg veitti frest ef ske kynni að ríkisstjórnin eða fjármálaráðherra vildi grípa inn í. Nei, það var ekki áhugi á því. Svo þegar allt er löngu frágengið mörgum mánuðum seinna hefst enn ein furðusýningin út af þessu máli sem tengist ekki á nokkurn hátt staðreyndum, eingöngu tilraunum til þess að tala upp í það sem menn telja að einhverjir vilji heyra, eins og þessi dæmalausa uppákoma um daginn þar sem hæstv. forsætisráðherra tók við undirskriftum og lýsti því yfir að þetta væri sérstakt gleðiefni vegna þess að þetta væri akkúrat í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar.
Þvílíkt dæmalaust rugl. Menn voru búnir að horfa á það í ár að þetta væri akkúrat ekki stefna ríkisstjórnarinnar, en svo kemur þessi yfirlýsing af því að væntanlega taldi hæstv. forsætisráðherra að þetta hljómaði vel. (Forseti hringir.) En það þarf ekki mín orð fyrir þessu, það nægir að líta á ótrúlega harðort og afgerandi álit umboðsmanns Alþingis (Forseti hringir.) um hversu fráleitlega ríkisstjórnin hefur haldið á þessu máli.