framtíðarskipan fiskveiðistjórnarkerfisins.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir ágæt svör og málefnaleg. Það er engu að síður staðreynd, og staðan í þinginu, að jafnvel þótt hæstv. fjármálaráðherra nenni ekki að taka þátt í umræðu um það að einhverjar hugmyndir muni leiða til kollsteypu í sjávarútveginum sitjum við uppi með það að hér tala þingmenn ítrekað fyrir leið sem sérfræðingar telja að muni leiða til gjaldþrots í sjávarútvegi. Þær leiðir sem hæstv. fjármálaráðherra hefur rætt um og voru tilefni fyrirspurnar minnar voru teknar til skoðunar í sérstakri nefnd. Þangað komu sérfræðingar og þeir komust að niðurstöðu um að örugglega þyrfti að endurúthluta til langs tíma. Spurningin er eiginlega bara þessi, einföld: Eigum við, þegar við gerum þessa kerfisbreytingu, að úthluta aftur til langs tíma eða á að setja allt á árlegan leigumarkað? Það er spurningin.
Síðari leiðin, að fara (Forseti hringir.) leigumarkaðsleiðina, mun leiða til gjaldþrota. Hin leiðin er nefnd samningaleið. Þá leið styð ég. Sjálfstæðisflokkurinn hefur stutt hana og ríkisstjórnin þarf (Forseti hringir.) að fara að taka af skarið með það að hún ætli að styðja þá leið og fara hana.