139. löggjafarþing — 67. fundur,  31. jan. 2011.

staða innanlandsflugs.

[15:56]
Horfa

Mörður Árnason (Sf):

Forseti. Það er til siðs að þakka hv. fyrirspyrjanda, upphafsmanni utandagskrárumræðu er það víst í þetta skiptið, það afrek að hafa vakið máls á málefnum innanlandsflugsins og lagt það á sig að tína saman þau gjöld og þær álögur á innanlandsflugið sem því hafa bæst á síðustu tímum, annars vegar skatta og hins vegar breytingar á gjöldum sem það og flugfarþegar bera. Það er að vísu nokkuð léttur leikur að gera það almennt, taka eina grein, atvinnugrein eða hluta af ríkisrekstri eða samfélagsgangi, og telja upp hversu miklu verr hún standi nú en var fyrir rúmum tveimur árum án þess að geta þess hvað olli því máli og hverjir stóðu fyrir því, t.d. hverjir höfðu þá verið 18 ár í ríkisstjórn, setið m.a. í stóli samgönguráðherra og átt sinn þátt í þeim miklu breytingum sem við höfum þurft að una við í tvö ár. Það er tiltölulega léttur leikur. Ég verð að segja það sem mína skoðun að þó að rétt sé að flugið beri ekki um of álögur í þessu efni held ég að enginn geti kvartað yfir því að þar sé sett á meira en viðurkvæmilegt er.

Af því að Reykjavíkurflugvöllur blandast alltaf í umræðu um samgöngur, hvort sem það eru almenningssamgöngur eða ekki, einkum hjá vinum flugvallarins á Akureyri, er það um hann að segja að höfuðborgin hefur réttindi og skyldur. Skylda höfuðborgarinnar er hins vegar ekki sú að láta það eftir mönnum utan bæjar að hafa Reykjavíkurflugvöllinn (Forseti hringir.) heldur að gegna þeirri skyldu sinni almennt, með þeim ráðum sem Reykvíkingar sjálfir finna, að taka á móti þingmönnum og öðrum flugfarþegum (Forseti hringir.) sem eru á leiðinni til þessa bæjarfélags.