139. löggjafarþing — 67. fundur,  31. jan. 2011.

undirbúningur og framkvæmd náttúruverndaráætlunar.

429. mál
[16:06]
Horfa

umhverfisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og fyrir að fylgja þessum málum vel eftir.

Náttúrustofurnar hafa vaxandi hlutverk við undirbúning og framkvæmd náttúruverndaráætlunar. Undirbúningur að núgildandi náttúruverndaráætlun hófst um mitt ár 2007 með því að skipaður var samstarfshópur þriggja fulltrúa frá umhverfisráðuneyti, Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun Íslands til þess að hafa yfirumsjón með undirbúningi og vinnslu náttúruverndaráætlunar 2009–2013. Hópnum var falið að leggja áherslu á bætta framkvæmd og eftirlit með þegar friðlýstum svæðum, áherslu á friðlýsingu á miðhálendi Íslands, svo sem Þjórsárvera og jaðarsvæða Vatnajökulsþjóðgarðs og loks á viðkvæm svæði og náttúrufyrirbæri í hafinu. Hugmyndir um áherslur, efnistök áætlunarinnar og starf samstarfshópsins voru kynnt á umhverfisþingi haustið 2007. Á því þingi gafst þingfulltrúum, þar á meðal fulltrúum náttúruverndarnefnda, sveitarfélaga og náttúrustofa, tækifæri til að koma með ábendingar um efni og áherslur áætlunarinnar. Jafnframt var upplýst að hægt væri að koma ábendingum um svæði eða tegundir af náttúruverndaráætlun á framfæri við samstarfshópinn eftir þingið. Þetta átti jafnt við um einstaklinga, félagasamtök, sveitarstjórnir og náttúrustofur sveitarfélaganna.

Í samræmi við lög 44/1999, um náttúruvernd, skal Umhverfisstofnun í samráði við Náttúrufræðistofnun Íslands, náttúrustofur og hlutaðeigandi náttúruverndarnefndir sjá um undirbúning og öflun gagna vegna áætlunarinnar. Við undirbúning gildandi náttúruverndaráætlunar var formlegt samráð við náttúrustofur ekki fyrir hendi, eins og þingmaðurinn benti á, en áætlunin var unnin á frekar stuttum tíma og byggðist mest á greiningu vísindalegra gagnagrunna um náttúru Íslands í vörslu Náttúrufræðistofnunar Íslands, einkum gagnagrunna um plöntur og smádýr.

Framkvæmd náttúruverndaráætlunar er skammt á veg komin frá gildistöku nýju áætlunarinnar en einkum hefur verið unnið að friðlýsingu landsvæða við Skerjafjörð innan sveitarfélagamarka Kópavogs. Þar hefur Náttúrufræðistofa Kópavogs komið að vinnunni. Í Vestmannaeyjum hefur Náttúrustofa Suðurlands tekið þátt í vinnu við friðlýsingarskilmála. Í Skagafirði hefur Náttúrustofa Norðurlands vestra komið að undirbúningi vinnu við friðlýsingu Austara-Eylendisins. Enn fremur hefur ráðuneytið í samráði við heimamenn unnið að undirbúningi að stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs.

Ég tel mikla ástæðu til að auka enn samstarf við náttúrustofur við undirbúning næstu náttúruverndaráætlunar og við undirbúning friðlýsinga og mun beina því til Umhverfisstofnunar og Náttúrustofnunar Íslands að efla samstarf við náttúrustofur. Þess má geta í því sambandi að Náttúrufræðistofnun Íslands vinnur að heildstæðri vöktunaráætlun á lífríki landsins og hefur haft samstarf við náttúrustofurnar í þeirri vinnu. Stefnt er að því að náttúrustofur og fleiri stofnanir hafi umsjón með ákveðnum þáttum vöktunar lífríkisins.