139. löggjafarþing — 68. fundur,  1. feb. 2011.

skattstefna ríkisstjórnarinnar.

[14:38]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F):

Frú forseti. Hvort sem litið er til uppbyggingar atvinnulífs, bættra kjara almennings eða annarra meginverkefna samtímans skiptir skattstefnan höfuðmáli. Í stað þess að laga skattkerfið að aðstæðum og skapa þann stöðugleika sem er bráðnauðsynlegur í uppbyggingarstarfi hafa verið innleiddar skattahækkanir og breytingar á skattkerfinu sem eru til þess fallnar að hafa þveröfug áhrif. Almenningur sem hefur mátt þola mikla kjararýrnun er skattpíndur, erlendri og innlendri fjárfestingu í atvinnulífinu er haldið niðri með skattkerfi sem refsar fyrir uppbyggingu en verðlaunar stöðnun. Verðtryggðar skuldir hækka jafnt og þétt með hærri sköttum á neysluvörur.

Í flestum vestrænum ríkjum gera menn sér grein fyrir því, og hafa gert alllengi, hversu mikilvægt það er að skattkerfi sé ekki of flókið. Ég var nýlega í Albaníu þar sem erfiðleikarnir eru miklir en hagvöxtur og uppbyggingarstarf eru nú komin á fullan skrið og það þökkuðu heimamenn því að skattkerfið hefði verið einfaldað. Hér, þar sem ómæld tækifæri eru til staðar, er stöðugt verið að auka flækjustig skattkerfisins og kveður svo rammt að því að Alþingi hefur leitt í lög skattareglur sem ekki fá staðist stærðfræðilega, ekki einu sinni þótt leitað sé til færustu algebrumanna.

Kerfið sem á að sjá um að skattarnir séu rétt reiknaðir og skili sér var ekki undir hinar miklu og dýru breytingar búið og þar er enn mikil vinna óunnin. Hjá stjórnvöldum skortir mjög á skilning á stöðu þeirra sem reka fyrirtæki eða bara sjálfa sig og fjölskyldu sína.

Með flóknara skattkerfi eykst munurinn á staðgreiðslu og endanlegri skattlagningu. Þannig fjölgar til muna þeim einstaklingum sem skulda skatt eftir að álagning hefur farið fram. Skattahækkanir og auknar flækjur hafa mjög letjandi áhrif á launþega. Menn sjá sér ekki lengur hag í að vinna og framleiða verðmæti. Samfara því eykst svört atvinnustarfsemi til muna og sú þróun er þegar hafin.

Hækkun tryggingagjalds dregur svo enn úr hvatanum fyrir fyrirtæki til að ráða starfsfólk en skapar þess í stað aukinn hvata til að draga saman seglin og fækka fólki. Alls staðar eru hvatarnir öfugir. Frá því að núverandi ríkisstjórn tók við höfum við meðal annars horft upp á að tekjuskattur lögaðila hefur verið hækkaður um þriðjung, úr 15% í 20%. Tryggingagjald var hækkað úr rúmum 5% upp í hátt í 9%. Tekinn var upp svokallaður afdráttarskattur af vaxtagreiðslum til erlendra lánveitenda. Fjármagnstekjuskattur einstaklinga var tvöfaldaður, úr 10% í 20%, og er nú líklega orðinn hærri en almennur tekjuskattur því að um er að ræða brúttóskatt án frádráttar vegna verðbólgu eða vaxtagjalda. Þrepaskipting tekjuskatts var tekin upp að nýju og skatthlutfall einstaklinga miðað við hæsta þrep hækkað úr 37,3% í 46,2%. Eignarskattur var tekinn upp að nýju, virðisaukaskattur sem var hár fyrir, 24,5%, var hækkaður upp í 25,5%. Hann er kominn yfir fjórðung.

Því til viðbótar hafa verið innleiddar ýmsar tæknilegar og flóknar skattahækkanir sem of langt mál yrði að telja upp hér (Gripið fram í.) og þá eru enn ótaldar ítrekaðar og umfangsmiklar hækkanir á ýmsum óbeinum sköttum og gjöldum, sem sagt bensíngjaldi, áfengisgjaldi, tóbaksgjaldi, vörugjöldum o.s.frv. Fyrir vikið hefur fólk sífellt minna fé milli handanna til að kaupa sér sífellt dýrari vörur og þjónustu. Þegar hækkanirnar fara yfir ákveðin mörk dregur úr umsvifum í efnahagslífinu. Það er einstaklega óheppilegt þegar við þurfum sárlega á því að halda að auka umsvifin. Minni neysla þýðir svo meira atvinnuleysi og aukinn kostnað fyrir ríkið. Þannig erum við lent í vítahring sem erfitt getur verið að losna út úr.

Í ágætri skattkerfisgreiningu frá KPMG kemur fram að reynsla frá undanförnum árum og áratugum sýni að í hvert sinn sem skattar voru lækkaðir jukust skatttekjur ríkissjóðs. Í þessu sambandi má benda á verkefnið Allir vinna sem verið hefur í gangi um nokkurt skeið. Þar stendur fólki til boða endurgreiðsla virðisaukaskatts af tilteknum framkvæmdum auk lækkunar tekjuskattsstofns. Fram hefur komið hjá stjórnvöldum og líka atvinnurekendum að verkefnið hafi gengið vonum framar og haft þau áhrif að velta og umsvif hjá iðnaðarmönnum hafi aukist mikið. Vegna þessa vaknar sú spurning hvort ekki megi yfirfæra þetta verkefni á þjóðfélagið í heild og kanna hvort umsvif í þjóðfélaginu muni ekki aukast ef skattar verða lækkaðir.

Sú lagasetning sem hefur verið innleidd til að hækka skatta og flækja skattkerfið hefur um margt verið óvönduð og fljótfærnisleg. Lítill tími hefur verið gefinn fyrir athugasemdir frá sérfræðingum. Samt veit ég að margir hafa setið sveittir við að skila athugasemdum til þingsins í tæka tíð og vara við mistökum en á þá hefur ekki verið hlustað.

Frú forseti. Nú er tími minn liðinn (Forseti hringir.) en ég mun snúa aftur á eftir.