skattstefna ríkisstjórnarinnar.
Frú forseti. Ég fagna því tækifæri að fá að tala hér um skattstefnu ríkisstjórnarinnar. Meginhlutverk skattkerfis er að afla tekna en tekjujöfnunarhlutverk þess er einnig gríðarlega mikilvægt, sérstaklega í augum okkar jafnaðarmanna, til að jafna lífskjör fólksins í landinu og ýta þannig undir jöfnuð og félagslega samheldni.
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur unnu í valdatíð sinni markvisst að því að létta skattbyrði af þeim tekjuhærri á kostnað þeirra tekjulægri. Þeirri þróun hefur ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur snúið við með því að auka skattbyrði á hátekjuhópa og ofurtekjufólk en hlífa þeim tekjulægri. (Gripið fram í: Og ráðast á millistéttina.)
Skattahækkanir á hærri tekjuhópa hafa dregið úr þörfinni fyrir niðurskurð sem okkur þykir þó fullkomlega yfirþyrmandi eins og ég minnist hér úr fjárlögunum þar sem kvartað var yfir niðurskurði. Með skattahækkunum, sem þó hafa ekki náð því hlutfalli af vergri landsframleiðslu sem var hér í upphafi fyrri áratugar, þ.e. upphafi fyrsta áratugar aldarinnar, höfum við dregið úr þörfinni fyrir niðurskurð, við höfum ekki þurft að draga jafnmikið úr samneyslunni og við hefðum þurft að gera ef við hefðum ekki hækkað skatta.
Ég velti fyrir mér í hvaða tilgangi óskað er eftir þessari umræðu, hvort hv. formaður Framsóknarflokksins sé hér að berja sér á brjóst fyrir frábæran árangur Framsóknarflokksins í hagstjórn og skattstefnu eða hvort hann er að samfagna okkur í núverandi ríkisstjórn (Forseti hringir.) með að hafa náð að gera svo mikilvægar breytingar á skattkerfinu sem raun ber vitni.