skattstefna ríkisstjórnarinnar.
Áður en umræðunni verður haldið frekar áfram er komið að því að hv. málshefjandi, hv. 8. þm. Reykv. n., taki til máls. Nú hefur það farið svo að hv. málshefjanda var gefið orðið í miðri umræðunni sem forseti telur ekki eðlilegt og vill geta þess hér að það er ekki fordæmisgefandi þar sem gert er ráð fyrir því að málshefjandi tali einungis tvisvar í utandagskrárumræðu en mun gera undanþágu að þessu sinni og gefa hv. 8. þm. Reykv. n. orðið að nýju í lok umræðunnar. Hefur hann tvær mínútur til ráðstöfunar og síðan tekur hæstv. fjármálaráðherra til máls.