139. löggjafarþing — 69. fundur, 2. feb. 2011.
samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.
388. mál
Virðulegur forseti. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að bregðast við því að hv. þingmaður tali um að ég sé með hótanir þegar ég lýsi þeim staðreyndum málsins sem blasa við. Það er í þágu almannaheilla og uppbyggingar og endurreisnar landsins sem valið er að ganga með ásættanlegum samningum frá þessari deilu og þeim vafamálum sem uppi hafa verið um Icesave.