139. löggjafarþing — 69. fundur, 2. feb. 2011.
samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.
388. mál
Virðulegi forseti. Ég ætlaði að gera athugasemdir við að hæstv. fjármálaráðherra og fulltrúar meiri hlutans sætu ekki í þingsal en sé nú að hæstv. fjármálaráðherra situr í hliðarsal og er væntanlega að fara mjög ítarlega yfir álitið sem ég mun gera grein fyrir innan skamms.