139. löggjafarþing — 69. fundur,  2. feb. 2011.

samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.

388. mál
[17:30]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Höskuldur Þórhallsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Í áliti 3. minni hluta, þ.e. þess sem hér stendur, er farið yfir málið. Ef hæstv. utanríkisráðherra hefur skilið það þannig að ég hafi þakkað mér einum að hér hafi tekist vel til er sú túlkun byggð á misskilningi. Það eru fjölmargir aðilar, m.a. félagar mínir í stjórnarandstöðunni, sama í hvaða flokki þeir eru, og Indefence, sem eiga heiður skilinn. Ég vildi hins vegar vekja athygli á því að ég var fyrstur manna til að leggja það til að málið færi í þjóðaratkvæðagreiðslu, ekki til þess að upphefja sjálfan mig heldur einfaldlega til að benda á það sem staðreynd. Ég vona að hæstv. utanríkisráðherra samþykki þessar útskýringar mínar.

Afstaða mín hefur verið algjörlega kýrskýr og kemur mjög skýrt fram í álitinu. Ég tel samningana góða að miklu leyti, fyrir utan kannski það að hin efnahagslega áhætta hvílir á Íslendingum. Ég hef bent á að ef við samþykkjum samningana þýðir það að gjaldeyrishöftin verða hér væntanlega til langrar framtíðar. Það er alveg sama hvernig á það er litið, það er staðreynd sem ríkisstjórnin má ekki horfa fram hjá.

Ég hef líka sagt að ég vildi fá betra mat á því hvaða afleiðingar það hefði ef við létum reyna á málið fyrir hlutlausum dómstólum. Í þessu áliti fjögurra lögfræðinga er ítarleg skilgreining á því. Meiri hluti fjárlaganefndar hafnaði því að slíks álits (Forseti hringir.) yrði aflað. Ég get sagt mjög skýrt þannig að enginn velkist ekki í vafa (Forseti hringir.) að ég mun ekki samþykkja þetta frumvarp fyrir mitt leyti.