samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.
Forseti. Í byrjun árs 2010 var gert samkomulag af hálfu þeirra stjórnmálaflokka sem eiga sæti á Alþingi um að hafnar yrðu að nýju samningaviðræður við bresk og hollensk stjórnvöld um lausn deilunnar um Icesave-reikninga Landsbankans. Í samráði við flokkana var skipuð samninganefnd sem í sátu Lee Buchheit, lögmaður og sérfræðingur í alþjóðlegum lánasamningum, Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, Einar Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, og hæstaréttarlögmennirnir Jóhannes Karl Sveinsson og Lárus Blöndal, en sá síðastnefndi var tilnefndur sameiginlega af flokkum utan ríkisstjórnar. Með nefndinni störfuðu síðan ýmsir íslenskir sem erlendir sérfræðingar auk embættismanna og sendiherra.
Í byrjun desember sl. náðist samkomulag milli aðila um lausn þessa máls og í kjölfarið lagði samninganefndin áritaða samninga fyrir formenn og fulltrúa allra þeirra flokka sem stóðu að því að veita henni umboð sitt til samningaviðræðna ásamt því að afhenda þeim drög að því frumvarpi sem við höfum til umfjöllunar í dag.
Í stuttu máli varð niðurstaða samninganna sú að í stað hefðbundinna lánasamninga voru gerðir endurgreiðslu- og skaðleysissamningar milli ríkjanna og Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta. Gert er ráð fyrir að tryggingarsjóðurinn endurgreiði breskum og hollenskum stjórnvöldum þær upphæðir sem þau hafa lagt út vegna Icesave-reikninganna en á móti fær tryggingarsjóðurinn samsvarandi hluta krafnanna úr búi Landsbankans og sér um innheimtu þeirra. Tryggingarsjóðurinn mun greiða þá fjármuni sem þegar eru til í sjóðnum til fyrstu greiðslna vaxta samkvæmt samningunum og mun í framhaldi af því greiða skuldina jöfnum höndum eftir því sem úthlutað verður úr búi Landsbankans til loka júlí 2016. Með þessum hætti er ábyrgð ríkisins takmörkuð eins og unnt er og í rauninni aðeins bundin samtímagreiðslu vaxta fram á mitt ár 2016 og síðan þeim hluta sem þá kann að standa út af og verður ekki innheimtur úr þrotabúi Landsbankans eftir þann tíma.
Í aðalatriðum snýr samkomulagið að nokkrum eftirtöldum atriðum.
Samið er um fasta vexti fram á mitt ár 2016, 3% af hollenska hlutanum sem er um einn þriðji skuldarinnar og 3,3% af þeim breska sem er tveir þriðju hlutar skuldarinnar. Vextir skulu greiðast frá og með 1. október 2009 og skal fyrsta greiðslan, þ.e. vextir frá 1. október 2009 til ársloka 2010, greiðast í byrjun árs 2016. Eftir það greiðast vextir af skuldinni ársfjórðungslega fram á mitt ár frá miðju ári 2011.
Í samkomulaginu er gert ráð fyrir efnahagslegum fyrirvörum af hálfu Íslands vegna hugsanlegra eftirstöðva frá miðju ári 2016. Þar er annars vegar um að ræða lengri lánstíma ef eftirstöðvar fara yfir tiltekna upphæð og hins vegar þak á árlegri greiðslu ríkissjóðs. Þannig er gert ráð fyrir að ef eftirstöðvar verða yfir 45 milljörðum um mitt ár 2016 muni lánstíminn lengjast um eitt ár við hverja 10 milljarða umfram 45 milljarða. Ef eftirstöðvar verða hins vegar undir 45 milljörðum skulu þær greiðast að fullu fyrir mitt ár 2017.
Hámark árlegrar greiðslu á eftirstöðvum miðast annars vegar við 5% af tekjum ríkisins næstliðins árs. Verði sú upphæð hins vegar lægri en 1,3% af vergri þjóðarframleiðslu næstliðins árs skal miðað við það. Miðað við þessa fyrirvara má gera ráð fyrir að tryggt verði, ef kemur til þess að eftirstöðvar verði af skuldbindingunum um mitt ár 2016, að greiðslubyrði íslenska ríkisins verði innan viðráðanlegra marka. Miðað við upplegg samkomulagsins verður þó að teljast ólíklegt að reyni á framangreindar skuldbindingar.
Í samkomulaginu sem nú liggur fyrir er gert ráð fyrir að úrlausn ágreiningsefna fari undir regluverk Alþjóðagerðardómstólsins í Haag. Fari svo að ágreiningi vegna samkomulagsins verði vísað til dómstólsins munu aðilar þess tilnefna hvor sinn fulltrúa og koma sér síðan saman um oddamann. Með þeim hætti er tryggt að ávallt sitji í gerðardómnum fulltrúi sem tilnefndur er af Íslands hálfu. Áfram er gert ráð fyrir sambærilegum ákvæðum og áður hafði verið samið um á fyrri stigum þessa máls varðandi efnahagslega stöðu Íslands, friðhelgisréttindi samkvæmt Vínarsamningi og sömuleiðis þær eignir sem nauðsynlegt er fyrir Ísland sem fullvalda ríki að ráða yfir. Áfram eru í samningunum sambærileg ákvæði og áður var gert ráð fyrir um náttúruauðlindir.
Mörg lagaleg atriði hafa breyst til bóta fyrir Ísland, t.d. gjaldfellingarákvæðið, vanefndaúrræðið og greiðslufrestir sem eru rýmri en áður. Áætlun samninganefndarinnar á þeim kostnaði sem búast má við að falli á Ísland vegna samninganna byggist á mati skilanefndar Landsbankans á heimtum úr þrotabúi Landsbankans, horfum á greiðslu til kröfuhafa eins og slitastjórn bankans metur þær og forsendum Seðlabanka Íslands á þróun á gengi gjaldmiðla. Niðurstaða þess er að sá kostnaður sem mun falla á ríkissjóð verði um eða innan við 50 milljarða króna. Er þá gert ráð fyrir þeim 20 milljörðum sem til eru í tryggingarsjóðnum sem verður ráðstafað upp í skuldbindingarnar í upphafi.
Samkvæmt þessu og gangi þetta eftir mun eingöngu vaxtakostnaður falla á ríkissjóð, 26 milljarðar vegna vaxta frá 1. október 2009 til ársloka 2010, eins og áður hefur komið fram, og síðan 17 milljarðar á árinu 2011. Vaxtagreiðslur fara svo hratt lækkandi á næstu árum eftir því sem höfuðstóll skuldbindinganna greiðist niður. Verður þeim að fullu lokið, eins og áður sagði, um mitt ár 2016.
Helstu áhættuþættir samninganna eru einkum þrír og varða eignaheimtur þrotabús Landsbankans, tímasetningu á greiðslu krafna og gengisþróun. Þó er mun meiri vissa um þá þætti núna en á fyrri stigum málsins er varða endurheimtur úr þrotabúi Landsbankans, enda hefur skilanefndin náð valdi á eignum bankans í Bretlandi og Hollandi. Skilanefndin gerir ráð fyrir að úthlutun upp í forgangskröfur nemi um 86% en mat á eignum hefur reynst varfærið en um leið raunhæft til þessa. Ekki er hægt að útiloka að breytingar kunni að verða á þessu jafnt til verri vegar sem og að heimtur verði betri frá því sem gert er ráð fyrir og líklegra að það fari á þann veg en hinn. Gengi íslensku krónunnar hefur sömuleiðis áhrif á hver heildarkostnaður ríkissjóðs mun á endanum verða sem og innbyrðis gengi gjaldmiðla. Nú þegar hefur styrking íslensku krónunnar haft áhrif til lækkunar á væntanlegum greiðslum en mat samninganefndarinnar á heildarkostnaði ríkisins byggist á reikniforsendum Seðlabankans sem gerir ráð fyrir að gengi íslensku krónunnar fari hækkandi á næstu árum.
Á fundum fjárlaganefndar með slitastjórn Landsbankans og skilanefnd var fjárlaganefnd upplýst mjög ítarlega um mat á eignum þrotabúsins og stöðu á væntanlegum innheimtum. Verður að segjast eins og er að skilanefnd og slitastjórn fóru mjög vel yfir þá vinnu sem þar liggur að baki. Það var bæði fróðlegt, gagnlegt og mikilvægt fyrir fjárlaganefnd að fá þær upplýsingar til að geta byggt frekar undir skoðun sína á því máli sem við fjöllum um og vegna trúverðugleika þess sem kemur fram í frumvarpinu og áætlana skilanefndar um heimtur.
Eins og áður sagði árituðu samninganefndarmenn samningana með upphafsstöfum sínum í byrjun desember sl. Áritunin er eingöngu til vitnis um þá niðurstöðu sem fékkst í viðræðum ríkjanna en samningarnir munu ekki verða staðfestir með undirritun nema Alþingi veiti samþykki sitt fyrir því með samþykkt þessa lagafrumvarps sem hér er til umræðu.
Fjárlaganefnd sendi frumvarpið til umsagnar til fjölmargra aðila til að fá mat á efnahagslegum þáttum málsins, lagalegum sem og öðru því sem umsagnaraðilar töldu sig þurfa að koma á framfæri við nefndina vegna þessa máls. Formaður fjárlaganefndar hefur farið ágætlega yfir þær umsagnir fyrr í þessari umræðu og álit meiri hlutans byggist m.a. á því.
Eins og fram kom í máli formannsins draga þeir sem gáfu fjárlaganefnd umsagnir um efnahagsleg áhrif upp ýmsar sviðsmyndir af því sem gæti hugsanlega gerst í framtíðinni og hefði áhrif á framgang málsins. Í stuttu máli má þó segja að niðurstaða þessara aðila sé í meginatriðum sú sama, líkt og segir í umsögn GAM Management sem fyrirtækið veitti fjárlaganefnd en þar segir, með leyfi forseta:
„Samkvæmt þeim samningsdrögum sem nú liggja fyrir verður ekki annað séð en að greiðslur af samkomulaginu séu tiltölulega smáar í samhengi við aðrar þjóðhagsstærðir.“
IFS-greining, sem gaf fjárlaganefnd umsögn sína á fyrri stigum þessa máls, er á sömu línu hvað þetta varðar og segir orðrétt í niðurstöðum sínum, með leyfi forseta:
„Niðurstaða okkar er að nýi samningurinn breyti ekki greiðsluhæfi ríkissjóðs að neinu marki, nema þá helst til batnaðar í gegnum óbein áhrif svo sem betra lánshæfismat, og að það séu aðrir þættir sem vega þar þyngra í efnahagslegu tilliti.“
Í lokaorðum umsagnar Seðlabanka Íslands er fjallað um þann kostnað sem kann að falla á ríkissjóð vegna málsins en síðan segir orðrétt í niðurstöðum umsagnar Seðlabankans, með leyfi forseta:
„Á móti kemur að afgreiðsla þessa máls mun líklega bæta verulega aðgengi íslenskra aðila að alþjóðlegum fjármálamarkaði. Erfitt er að meta kostnað tafa við endurreisn íslensks efnahagslífs sem rekja má til þess að ósamið hefur verið um Icesave-skuldbindinguna. Hins vegar er líklegt að frekari tafir verði því kostnaðarsamari sem möguleikar Íslands til að sækja fjármagn á erlenda markaði batna að öðru leyti.“
Í umsögn Samtaka atvinnulífsins segir m.a., með leyfi forseta:
„Samtök atvinnulífsins hafa áður lýst því yfir að mikilvægt sé að leysa úr ágreiningi við Breta og Hollendinga um Icesave þar sem málið hafi áhrif á efnahagslega þróun Íslands. Má í því sambandi benda á að því hefur verið haldið fram að málið hafi haft truflandi áhrif á fjármögnun mikilvægra framkvæmda til atvinnuuppbyggingar hér á landi, …“
Alþýðusamband Íslands fagnar því að náðst hafi að nýju samningar um lausn Icesave-málsins. Það er álit ASÍ að dráttur á lausn Icesave-málsins hafi torveldað og tafið endurreisn efnahags- og atvinnulífs Íslands og nauðsynlegan aðgang landsins að erlendum fjármálamörkuðum, eins og segir í umsögninni. Þar segir einnig, með leyfi forseta:
„Afleiðingar tafanna á lausn málsins er erfitt að meta til fjár, tapaðra starfa, lakari hagvaxtar og hægari uppbyggingar en ljóst má vera að þær eru umtalsverðar.“
Sömuleiðis er það mat ASÍ að „[n]ýr samningur um lausn Icesave-deilunnar virðist hagstæðari en fyrri samningar, þó erfitt sé að meta það einhlítt“.
Af þessum umsögnum má ráða að þeir sem veittu fjárlaganefnd umsögn um efnahagsleg áhrif þessa máls telja að með samþykkt frumvarpsins muni það frekar leiða til góðs í efnahags- og atvinnulífi þjóðarinnar en ills og verði líklegt til að flýta fyrir efnahagslegri endurreisn landsins.
Formaður fjárlaganefndar hefur þegar farið vel yfir þær umsagnir sem bárust nefndinni varðandi lagalega þætti málsins og ég ætla ekki að endurtaka það enda ástæðulaust, svo vel hefur verið fjallað um það bæði af hálfu hv. þm. Oddnýjar Harðardóttur, formanns fjárlaganefndar, og annarra hv. þingmanna í umræðunni fyrr í dag. Ég vil þó vekja athygli á því að sá hópur lögmanna sem fjárlaganefnd fól að fara yfir það samkomulag sem liggur fyrir var sammála um öll meginatriði þess að undanskildu því að skiptar skoðanir voru í hópnum um hugsanlega niðurstöðu í dómsmáli færi málið fyrir dóm — þó það nú væri að hópur lögmanna yrði sammála um eina hugsanlega niðurstöðu í svo miklu deilumáli. Það fór reyndar alveg endanna á milli, allt frá því að mögulegt væri að málið tapaðist að fullu, þ.e. Bretar og Hollendingar mundu krefjast þess fyrir dómi að fá greidda alla skuldina ásamt háum vöxtum frá fyrsta degi, til þess að Ísland yrði ekki dæmt til greiðslna.
Umfjöllun fjárlaganefndar um málið hófst 12. janúar sl. Sú dagsetning var í raun og veru löngu ákveðin, hafði verið ákveðin á fundi fulltrúa flokkanna í fjárlaganefnd fyrir jól áður en þinghaldi lauk 2010. Til fundanna var boðað með góðum fyrirvara. Það átti því ekki að fara fram hjá nokkrum fjárlaganefndarmanni hvað fram undan væri á þeim vettvangi, enda var þeim fundahöldum ekki mótmælt nema af einum fjárlaganefndarmanni. Það er því ekki hægt að halda því fram að það hafi verið gert í ósætti innan fjárlaganefndar.
Vinna fjárlaganefndar byggðist að sjálfsögðu á þeim umsögnum sem nefndinni bárust frá umsagnaraðilum og heimsóknum þeirra sem komu fyrir nefndina og fylgdu þannig umsögnum sínum eða máli eftir, ásamt því að byggja að hluta til á eldri gögnum sem fyrir lágu í málinu. Sumar umsagnanna sem bárust okkur í hendur voru framhald af því sem áður hafði verið sagt og gert á þessum vettvangi enda er talsverð reynsla af umfjölluninni um Icesave-málið í fjárlaganefnd, eins og allir vita.
Fjárlaganefnd gaf sér góðan tíma til að fjalla um frumvarpið og gaf öllum umsagnaraðilum rúman tíma á fundum nefndarinnar. Umræðan var undantekningarlaust tæmd á fundum, engin spurning lá í loftinu eftir fund. Aldrei var þrýst á að ljúka fundum eða kalla inn næstu aðila. Við gáfum okkur rúman og góðan tíma til að fjalla um hvert einasta atriði sem á borð okkar kom. Ég held að ég geti fullyrt að meiri hlutinn hafi orðið við öllum óskum minni hlutans um öflun gagna og upplýsinga, boðað gesti til funda og leitað eftir öllum þeim upplýsingum sem óskað var eftir. Samkomulagið í nefndinni var einnig mjög gott og að mínu mati var sameiginlegt markmið meiri hluta nefndarinnar — þá er ég ekki að tala um stjórnarmeirihlutann heldur mikinn yfirgnæfandi meiri hluta nefndarinnar ef ekki alla nefndarmenn — að ljúka þessu máli þannig að við gætum komið því inn á þing í sem víðtækastri sátt innan nefndarinnar og að ekki væri ýtt á eftir því þannig að það kæmi þangað í ósætti. Málið var einfaldlega tæmt, umræðan var búin, ekkert meira var um það að segja. Ekki hafði verið óskað eftir frekari umsögnum. Ekki hafði verið óskað eftir frekari gögnum. Umræðunni var lokið hvað það varðar og þegar svo var komið í fjárlaganefnd var ákveðið að gefa nefndarmönnum, öllum fulltrúum þeirra flokka sem þar eiga sæti, rúman tíma til að undirbúa nefndarálit sín og koma sínum málum á framfæri eins og þau hafa greinilega nýtt sér og sjá má á þeim nefndarálitum sem liggja fyrir.
Eins og ég sagði áðan var samstarfið í nefndinni mjög gott og ég þakka nefndarmönnum öllum fyrir sameiginlega vilja okkar allra til að leysa málið með þeim hætti að það er komið inn á þing til umræðu. Árangur af starfi fjárlaganefndar má sjá í nefndarálitum og þá sérstaklega í áliti fulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Góð lending hefur náðst í því máli sem við fjöllum um og ég el von í brjósti um að málið fái farsælar lyktir á því stigi sem það er þó komið, en ég hef áður alið þá von í brjósti á fyrri stigum. Það er álit mitt og okkar vinstri grænna í fjárlaganefnd að það beri að samþykkja málið eins og það liggur fyrir nú. Við stöndum að meirihlutaálitinu og leggjum til að málið verði samþykkt.