samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.
Virðulegi forseti. Þann 19. nóvember 2009 var eftirfarandi sagt hér í ræðustól, með leyfi forseta:
„Við eigum að halda virðingu okkar og sæta ekki afarkostum sem aðrar þjóðir ætla að setja okkur. Okkur hefur farnast best þegar við höfum staðið á rétti okkar í sögunni.“
Þetta sagði hv. þm. Bjarni Benediktsson í þessum ræðustól. Hann sagði þá að við ættum að standa á rétti okkar. Nú kemur þessi hv. þingmaður, formaður Sjálfstæðisflokksins, allt í einu og kúvendir í þeirri afstöðu sinni að við eigum ekki að standa á rétti okkar gagnvart kúgun erlendra þjóða, gagnvart því að vera svínbeygð til að taka á okkur skuldir sem okkur ber ekki að taka. Og getur verið að það sé vegna þess að nú séu gömlu flokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Samfylking, búnir að ná saman aftur, komnir í plottið sitt sem þeir voru í þegar allt féll hér og allt fór fjandans til? Eru þeir búnir að ná saman, þessir gömlu flokkar sem sátu við stjórnvölinn og báru ábyrgð á því þegar allt hrundi hér? Mér sýnist að búið sé að sætta liðið, svo ég orði það nú þannig.
Mig langar að spyrja (Forseti hringir.) hv. þingmann: Hvar liggur áhættan af þeim samningi sem honum er svo annt um að samþykkja nú?