samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.
Virðulegi forseti. Ég get alveg tekið undir með hv. þm. Helga Hjörvar að við þurfum að spýta í lófana og koma af stað fleiri atvinnutækifærum. Þingmaðurinn nefndi gagnaverin og við komum þeim lögum í gegn, þrátt fyrir andstöðu Vinstri grænna og nokkurra þingmanna Framsóknarflokksins, og það var vel. Átakið Allir vinna er svo sem ágætt til síns brúks en er ekki neitt til að byggja atvinnulíf þjóðar á þannig að við skulum ekkert rifna yfir því.
Ég get verið sammála þingmanninum um að til þess að minnka enn frekar áhættuna af samningunum eigum við að koma íslensku efnahagslífi af stað eins fljótt og eins vel og hægt er. Þar þarf ríkisstjórnin fyrst og fremst að stíga (Forseti hringir.) til hliðar fyrir því sem gæti orðið til að (Forseti hringir.) atvinnulíf færi hér af stað. Náttúrlega væri allra best ef ríkisstjórnin færi frá (Forseti hringir.) og sýndi þar með (Gripið fram í.) að hún vildi raunverulega koma atvinnulífinu af stað.