139. löggjafarþing — 70. fundur,  3. feb. 2011.

aðildarviðræður við ESB.

[10:44]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S):

Virðulegi forseti. Það blasir við hverjum einasta manni að ESB-viðræðurnar eru komnar í fullkomið uppnám og öngstræti. Vegna ágreinings milli ríkisstjórnarflokkanna ríkir algert forustuleysi af hálfu ríkisstjórnarinnar um þessi mál og þessar viðræður eru að verða hálfgerður skrípaleikur. Það veit enginn hvert á að fara. Hið yfirlýsta markmið er að ganga í Evrópusambandið en viðræðurnar ganga svo skrykkjótt fyrir sig og skringilega að það er algerlega óljóst hvert ferðinni er heitið. Ég spyr hæstv. forsætisráðherra: Hvert er ferðinni heitið? Er ferðinni heitið með íslensku þjóðina inn í Evrópusambandið og er um það samstaða af hálfu ríkisstjórnarinnar?

Þessi mál eru þannig vaxin að þau kalla á nána samvinnu fagráðherra og hæstv. utanríkisráðherra. Nú vitum við hvernig það mál hefur gengið fyrir sig. Það hefur ekki verið mjög gott samráð. Það hefur verið fullkomin andstaða af hálfu einstakra ráðherra og helmingurinn af ríkisstjórninni er yfirlýstir andstæðingar þess að ganga inn í Evrópusambandið. Hæstv. forsætisráðherra verður að svara þessu: Vill ríkisstjórnin að samningarnir gangi fram? Er hæstv. forsætisráðherra sjálf sátt og ánægð með þau samskipti sem þar hafa verið og telur hæstv. ráðherra að í ríkisstjórninni ríki trúnaður um þessi mál?

Við vitum hvernig til var stofnað í upphafi. Ákvörðunin á Alþingi var knúin fram með hótunum af hálfu hæstv. forsætisráðherra. Það hefur verið upplýst af einstökum þingmönnum stjórnarliðsins að þeir hafi verið teymdir inn í bakherbergi af hæstv. forsætisráðherra og þeim hótað að ef þeir ekki samþykktu þessa aðildarumsókn yrði ríkisstjórnin sprengd í loft upp. Hæstv. forsætisráðherra verður að fara að taka af skarið. Hæstv. forsætisráðherra verður að svara okkur um það hvort ríkisstjórnin standi á bak við það sem verið er að gera, (Forseti hringir.) hvert ferðinni sé heitið og hvernig þessu samráði milli ráðherra og fagráðherra sé háttað.