139. löggjafarþing — 70. fundur,  3. feb. 2011.

samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.

388. mál
[14:36]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Höskuldur Þórhallsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hef gaman af því að fá bréf og mér er nokk sama hvaðan þau koma en ég hef ekki fengið neitt bréf frá fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins. Ég var nú heldur ekki að segja að hann hefði sent þetta bréf til þingmanna. Hins vegar er það efst á forsíðu mbl.is og þar er farið mjög ítarlega í þá skoðun hans að nú eigi sjálfstæðismenn að stefna á að setja málið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Við sem horfum á Sjálfstæðisflokkinn utan frá skiljum ekki allt sem þar fer fram en mér hefur stundum virst eins og einstaka sinnum komi skilaboð frá Hádegismóum þó að ég ætli ekki að væna þann þingmann sem ég á orðastað við um að fylgja þeim í hvívetna.

Mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann, fyrst hann leggur áherslu á að málið sé upplýst, hvort hann sé reiðubúinn að samþykkja málið jafnvel þótt mikilvægt atriði eins og það að meta áhættuna af því að fara í dómsmál sé ókannað. Mig langar að spyrja hvort hann sé reiðubúinn að leggja í skuldbindingar, gríðarlega miklar skuldbindingar, þó að þær séu miklu viðráðanlegri en áður var samþykkt hér á Alþingi — hvort það breyti afstöðu hans? Mun hann engu að síður vera á já-takkanum? Gefum okkur að þingmenn Sjálfstæðisflokksins samþykki að setja málið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ef það verður fellt, mun þingmaðurinn segja já eða mun hann vera á gula takkanum eða rauða takkanum? Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa nú verið svona svolítið úti um allt í þessu. Mér þætti gaman að heyra afstöðu þingmannsins varðandi þetta.