dómstólar.
Virðulegi forseti. Ég hélt því ekki fram að við hefðum verið beittir þjösnaskap við meðferð málsins í allsherjarnefnd. Ég gagnrýndi hins vegar málsmeðferðina og ég lýsti því að við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hefðum óskað eftir því að til fundar við nefndina yrðu kallaðir formaður Dómarafélagsins, sem kom, en líka fulltrúar Lögmannafélagsins, Lögfræðingafélagsins, Ákærendafélagsins, og dómstólaráðs. Það kann vel að vera að hv. þm. Valgerður Bjarnadóttir hafi talið óþarft að ræða við þessa aðila en ég og félagi minn, hv. þm. Birgir Ármannsson, vorum henni ósammála um það. Ég lýsti því áðan að sú regla hefur verið viðtekin á Alþingi í störfum nefnda að þegar þingmenn og nefndarmenn óska eftir því að gestir sem hafa eitthvað um málið að segja að mati þingmanna verði kallaðir til fundar við hana, þá hefur verið orðið við slíkum beiðnum. Það var á hinn bóginn ekki gert í þessu tilviki. Hv. þingmaður getur haft skoðanir sínar á því hvort þessi beiðni okkar hv. þm. Birgis Ármannssonar hafi verið réttmæt. Við töldum að nauðsynlegt væri að eiga orðastað við þetta fólk til að hægt væri að ljúka rannsókn á málinu og yfirferð þess og þar við situr. Ég leyfi mér að gagnrýna að við þessu hafi ekki verið orðið.
Það kemur á óvart að hv. þingmanni komi á óvart að einhver ágreiningur sé um þá leið sem farin er í frumvarpinu. Við höfum margoft lýst viðhorfum okkar til þeirrar leiðar sem hér er farin bæði í nefndinni og á Alþingi. Það er alveg rétt sem fram hefur komið að bent hefur verið á sjónarmið gegn því að aðstoðarmönnum sé fjölgað, en við höfum bara viljað skoða (Forseti hringir.) þá leið með það að markmiði (Forseti hringir.) að reyna að styrkja og efla dómstólana.