brunavarnir.
Frú forseti. Það er skarplega athugað hjá hv. formanni umhverfisnefndar að koma með breytingartillögu á þessum degi um að bæta við lýsingarorðinu „stór“ þannig að talað verði um stór skilti í skilgreiningarákvæði í brunavarnalögum. Ég neita því ekki að ég hefði frekar kosið að taka út orðið „stór“ í mannvirkjalögunum en það er annað mál. Það er erfitt í framkvæmd þegar sett eru svona matskennd ákvæði í lög en það er þó ekki til mikils skaða hér og ég mun styðja þessa tillögu hv. formanns nefndarinnar enda er í lögum um mannvirki vandlega frá því gengið að það skuli ákveðið með reglugerð hvaða skilti skulu háð byggingarleyfi. Samkvæmt ákvæði um gildissvið í 2. gr. laga um mannvirki taka þau lög til allra skilta, ekki eingöngu stórra skilta. Ég styð þessa tillögu.