lög um gerð aðalskipulags.
Frú forseti. Það var einfaldlega ágreiningur uppi um þetta ákvæði skipulagslaga og hann var ekki nýr af nálinni, samanber það að því var skotið til samgönguráðherra hvort það samrýmdist ákvæðum laga um gerð aðalskipulags að framkvæmdaraðili greiddi hluta kostnaðarins. Niðurstaða samgönguráðuneytisins sem fer með sveitarstjórnarmál var að úrskurða þann þátt samningsins ógildan, að það væri ekki heimilt. Í framhaldi af því kemst umhverfisráðherra að sömu niðurstöðu þannig að tvö ráðuneyti komast að þeirri niðurstöðu að það sé eðlilegt að túlka skipulagslögin svona. Það sem ég vildi gjarnan heyra væri sjónarmið þingmanna um það hvort þeir væru alveg hæstánægðir með það fyrirkomulag. Ætlum við að hafa það þannig til frambúðar að hagsmunaaðilar geti greitt fyrir hluta af reglusetningu af þessu tagi? Þá er orðið stutt í að bankar geti borgað Fjármálaeftirlitinu að hluta til fyrir regluverkið um fjármálaeftirlit eða útvegsmenn … (Gripið fram í: Þeir gera það.) Ekki setningu reglugerða. Á LÍÚ að standa straum af vinnu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins við að gefa út reglugerðir?
Ég held að við eigum að tala um þessa hluti eins og þeir eru. Þarna var uppi óvissa sem að endingu fékkst niðurstaða um varðandi þennan tiltekna þátt og þetta tiltekna skipulag. Þegar menn lesa það segir Hæstiréttur þvert á móti að það geti ógnað réttaröryggi og almannahagsmunum að hagsmunaaðilar fái að greiða sérstaklega fyrir skipulag af þessu tagi. Það er fyrst og fremst vegna þess að upphæðin sé það óveruleg í þessu tilviki og að ekki hafi verið sýnt fram á að þetta hafi haft bein áhrif á niðurstöðuna sem Hæstiréttur telur að hún eigi að standa. Hann staðfestir í raun að þarna sé grátt svæði. Þetta þarf auðvitað að fá á hreint og Alþingi þarf held ég líka að skoða (Forseti hringir.) hvernig það ætlar nákvæmlega að búa um þetta í löggjöf þannig að árekstrar af þessu tagi komi ekki upp.