skuldamál fyrirtækja.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessa fyrirspurn. Við gengum frá samkomulagi fyrir áramót við aðildarsamtök atvinnulífsins, við samtök fjármálafyrirtækja og að því kom ríkisvaldið líka, bæði í gegnum efnahags- og viðskiptaráðuneytið og fjármálaráðuneytið, til að tryggja að ríkið kæmi að málum sem kröfuhafi, gæfi eftir skattskuldir þegar þörf væri á til að greiða fyrir meðferð skuldamála fyrirtækja svo að þau gætu tekist á hendur ný verkefni, bætt við sig fólki í stað þess að þurfa að segja því upp.
Þetta verkefni gengur ágætlega. Markmiðið var að öll fyrirtækin sem féllu undir þetta viðmið og skulduðu innan við 1 milljarð kr. fengju tilboð frá sínum banka um endurskipulagningu skulda sinna fyrir sumarið. Við vonumst til að það gangi eftir.
Við höfum líka verið að knýja á um aðgerðir í úrvinnslu skuldamála fyrirtækja á öllum vígstöðvum. Af hálfu ráðuneytisins hefur verið lögð á það áhersla við Fjármálaeftirlitið að eftirlit þess taki í auknum mæli mið af því að tryggja að bankarnir vinni úr skuldamálum fyrirtækjanna og hvetji þá til að taka á þeim og vinna hratt úr þeim. Við höfum með sama hætti verið að vinna með Samkeppniseftirlitinu sem hefur sett verulegar hömlur á möguleika bankanna til að taka yfir fyrirtæki og sett bönkunum ákveðin tímamörk í því hvað þeir megi halda fyrirtækjum lengi undir sínum yfirráðum og hvetja bankana á margvíslegan annan hátt til að koma fyrirtækjunum sem fyrst aftur á markað til að greiða einmitt fyrir eðlilegum samkeppnisaðstæðum á markaði.
Að síðustu samþykktum við hér í gengislánafrumvarpinu heimild til eftirlitsnefndarinnar um vinnslu sértæku skuldaaðlögunarinnar til að ráða fólk til að fylgjast betur með (Forseti hringir.) meðferð erfiðra skuldamála í bönkunum. Við erum því á öllum vígstöðvum að knýja á um úrvinnslu erfiðra skuldamála og greiða fyrir því að fyrirtæki fái sem fyrst fast land undir fætur.