139. löggjafarþing — 71. fundur,  14. feb. 2011.

afnám verðtryggingar.

[15:55]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Eygló Harðardóttur fyrir að vekja máls á þessu merkilega máli. Mig langar aðeins til að minnast á það í upphafi hvernig verðtryggingin kom til vegna þess að það er ekki rétt hjá hæstv. ráðherra að þetta hafi verið eitthvert séríslenskt fyrirbæri. Það var einfaldlega þannig að í lok áttunda áratugarins voru Vesturlönd mjög plöguð af verðbólgu eftir olíukreppurnar og viðbrögð okkar Íslendinga voru að reyna að varðveita verðmæti gjaldmiðilsins til að ná sparnaði og öðru slíku með því að setja á verðtryggingu. Viðbrögð Bandaríkjamanna voru t.d. þau að keyra mjög harða peningamálastefnu í valdatíð Volckers þar sem stýrivextirnir voru í kringum 20%.

Það er eitt sem mig langar til að minnast á á þeim stutta tíma sem ég hef, þá staðreynd að þótt það séu margir kostir við að afnema verðtrygginguna mega menn ekki vaða í þeirri villu að afnám verðtryggingar muni leiða til lægri fjármagnskostnaðar fyrir heimilin. Margir telja að það muni verða vegna þess að við afnám verðtryggingar yrðu væntanlega breytilegir nafnvextir og þeim yrði breytt í takt við verðbólguna. Ef verðbólgan er mjög sveiflukennd mundi það enda með hærri vöxtum eins og Fisher-reglan segir til um en ef við höfum eingöngu (Forseti hringir.) verðtrygginguna.