139. löggjafarþing — 71. fundur,  14. feb. 2011.

afnám verðtryggingar.

[16:04]
Horfa

Magnús Orri Schram (Sf):

Virðulegi forseti. Stöðugum gjaldmiðli fylgir minni þörf á verðtryggingu. Í löndum eins og Íslandi þar sem verðbólguþróun er óviss eða breytileg er verðtrygging trygging lánveitenda gegn rýrnun höfuðstóls, að öðrum kosti yrðu vextir að vera hærri. Það má ætla að vaxtastig í landinu væri hærra ef verðtryggingar nyti ekki við. Það er svo að enginn fjármagnseigandi, hvorki innlendur né erlendur, vill lána krónur án verðtryggingar. Kostnaður Íslendinga við að hafa krónuna kemur því fram í hærri vöxtum og verðtryggingu.

Ef borinn er saman kostnaður við 20 millj. kr. íbúðalán hér á landi annars vegar og hins vegar í öðru Evrópulandi kemur í ljós, ef íbúðalánið er til 25 ára með 5% vöxtum og verðtryggt hér á landi, kemur í ljós að endurgreiðsla, vextir, verðbætur og annar kostnaður á tímabilinu, er 64,2 millj. kr. Ef lánið yrði tekið í Evrópulandi innan ESB, 20 millj. kr. til 25 ára á u.þ.b. 4% vöxtum sem nú eru ríkjandi, kemur í ljós að endurgreiðsla, vextir og annar kostnaður er 32,6 millj. kr. Engar verðbætur eru þar og munurinn er 31,6 millj. kr., að meðaltali 105 þús. kr. á mánuði í 25 ár. Mestu munar um verðbæturnar á tímabilinu, tæplega 30 millj. kr.

Fulltrúar Samfylkingarinnar hafa lengi barist fyrir því að hverfa frá þessu óréttlæti. Nauðsynlegt er að losa íslensk heimili undan verðtryggingu og besta leiðin til þess er að skipta um mynt. Samfylkingin er eini flokkurinn sem hefur skýra framtíðarsýn í þessum efnum. Ef Ísland gengur í Evrópusambandið er ekkert sem hindrar að ganga strax í ERM2-samstarfið. Þá mundi landið fylgja fastgengisstefnu Evrópusambandsins gagnvart evru og fá aðstoð Evrópska seðlabankans til þess. Þannig mun aðildarríkið aðlagast fastgengisstefnu Evrópusambandsins en henni fylgir öryggi og um leið losum við íslensk heimili undan vaxtamun og verðtryggingu.