139. löggjafarþing — 71. fundur,  14. feb. 2011.

afnám verðtryggingar.

[16:10]
Horfa

Þór Saari (Hr):

Virðulegur forseti. Við ræðum hið eilífa þrætuepli verðtrygginguna. Við horfum upp á það í annað sinn á 25 árum að stór hluti heimila á Íslandi er farinn á hliðina vegna verðtryggingarinnar sem menn mæra svo mjög. Sjálfur átti ég íbúð fyrir 25 árum og horfði upp á vini mína og félaga tapa öllu sínu. Ég horfi upp á það í annað sinn í dag. Það er hlálegt að svona skuli fara fyrir íslenskri þjóð, að hafa ekki meira vit í höfðinu en svo að haga efnahagsmálum sínum með þessum hætti. Launaseðillinn minn frá árinu 1985 var um 700 þús. kr. Skömmu síðar voru tekin tvö núll af krónunni. Launaseðillinn minn í dag stendur í litlu lægri upphæð, þ.e. einum hundraðasta af því sem þá var. Þannig er efnahagsstjórninni á Íslandi farið og ekkert útlit fyrir að bót verði á.

Fólk kaupir sér þak yfir höfuðið og tekur lán á þeim forsendum að afborganir af láninu hækki vegna þess að Hagkaup hækkar verð á tómatsósu, það eru fáránlegar forsendur. Afborganir af láninu hækka vegna þess að skógareldar í Rússlandi leiða til hækkunar á heimsmarkaðsverði á hveiti, það eru fáránlegar forsendur. Það er fáránleiki verðtryggingarinnar sem gerir hana svo geggjaða. Hún er algjörlega órökrétt eins og hún er notuð á Íslandi, að tengja hana við neysluverðsvísitölu. Hún er óréttlát. Þeir sem þurfa að taka lán til að koma sér upp þaki yfir höfuðið eiga enga aðra möguleika. Verðtryggingin á Íslandi er einfaldlega aðför að almenningi og kjörum fólks. Það er skammarlegt að ríkisstjórn sem kennir sig við vinstri stefnu skuli ekki nota tækifærið og afnema verðtrygginguna. Það var ömurlegt að hlusta á hæstv. viðskiptaráðherra (Forseti hringir.) mæra verðtrygginguna.