139. löggjafarþing — 72. fundur,  15. feb. 2011.

dómur Hæstaréttar um skipulag Flóahrepps.

[14:48]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Frú forseti. Á fimmtudaginn féll dómur í Hæstarétti Íslands. Umhverfisráðherra framdi lögbrot þegar hún synjaði aðalskipulagi Flóahrepps staðfestingar. Sex hæstaréttardómarar komust að þessari niðurstöðu. Þetta er sannarlega ekki í fyrsta skipti sem íslenskur ráðherra er dæmdur í Hæstarétti, þangað leitum við þegar við þurfum að láta skera úr um ágreining. Þannig virkar réttarríki okkar. Ég leyfi mér að fullyrða að í þessum dómi felist mikil tíðindi og veruleg nýmæli. Ég leyfi mér að fullyrða að umhverfisráðherra hafi ekki af einstakri umhyggju fyrir lögum og góðri stjórnsýslu ákveðið að synja skipulagi Flóahrepps staðfestingar og síðan ákveðið að áfrýja dómi Héraðsdóms Suðurlands til Hæstaréttar. Nei, þvert á móti hefur umhverfisráðherra sagt það sjálf að ákvörðun hennar hafi verið pólitísk, með leyfi forseta:

„Ja, allt sem ég geri er pólitík, ég meina ég er í stjórnmálum og eitt af því sem ég legg til grundvallar er að vinna vinnuna mína og hafa hagsmuni umhverfis og náttúru að leiðarljósi í mínum ákvörðunum.“

Fyrsta spurning mín til ráðherrans hlýtur að vera sú hvort hún ætli ekki örugglega að bera pólitíska ábyrgð á þeirri pólitísku ákvörðun. Fylgir það ekki pólitískum ákvörðunum að bera á þeim pólitíska ábyrgð?

Einnig leikur mér forvitni á að vita, þar sem ráðherrann vísar í umræddri tilvitnun til umhverfissjónarmiða, hvar í rökstuðningi ráðherrans fyrir dómi eða annars staðar í ferlinu koma þessi umhverfisrök fram? Einu lögfræðilegu rökin sem reifuð eru í dómnum eru að skera þurfi úr um álitamál gagnvart því hver má greiða fyrir hvað. Umhverfið er hvergi nefnt á nafn í öllum málarekstri ráðherrans. Er það kannski vegna þess að öllum lagalegum umhverfiskröfum var fullnægt í öllu ferlinu? Getur verið að ráðherrann hafi hreinlega ekki haft umhverfisrök í málinu? Þetta er vissulega pólitík og ekkert annað en pólitík. Hæstiréttur, og héraðsdómur áður, hefur hafnað þessari pólitísku ákvörðun og hvernig ætlar ráðherrann að bregðast við því? Ætlar ráðherrann að staðfesta aðalskipulag Flóahrepps? Og ég ítreka spurninguna: Ætlar ráðherrann að bera pólitíska ábyrgð á sínum pólitísku ákvörðunum eða lítur hæstv. ráðherra svo á að pólitík Vinstri grænna sé hafin yfir landslög?

Sveitarstjórn Flóahrepps er líka að vinna vinnuna sína. Sveitarstjórn Flóahrepps er lýðræðislega kjörið stjórnvald sem vinnur í þágu umbjóðenda sinna, kjósenda sinna, og með hagsmuni þeirra og sveitarfélagsins að leiðarljósi. Munurinn á því og hæstv. umhverfisráðherra er þó sá að sveitarstjórn Flóahrepps fór eftir lögum, sú sama sveitarstjórn sem nú liggur undir beinum ámælum frá ráðherrum og þingmönnum, ekki síst í umræðunni áðan, um mútuþægni. Ég leyfi mér að segja: Hafi þeir hinir sömu skömm fyrir þau ummæli sem hér hafa verið látin falla.

Ég spyr líka um önnur fordæmi um greiðslur vegna skipulagsmála. Hvernig fer t.d. með það þegar Vegagerðin fer fram á breytingu á skipulagi vegna vegalagningar? Bera sveitarfélögin kostnað af þeirri vinnu sem þar þarf að fara fram? Ég held ekki. Mér segir svo hugur að hin opinbera stofnun Vegagerðin borgi annaðhvort sveitarfélögunum sjálfum eða þeim aðilum sem vinna þá vinnu fyrir skipulag sem þeir óska eftir í tengslum við vegagerð. Það má líka spyrja: Hvað með hafnargerð? Hvað með línulagnir á vegum Landsnets? Ég spyr: Voru ekki fordæmin nóg fyrir hæstv. umhverfisráðherra til að þurfa ekki að eyða tveimur árum af tíma og fjármagni fámenns sveitarfélags í óþarfamálarekstur?

Til að taka af allan vafa um þetta atriði breytti löggjafinn í millitíðinni skipulagslögum þannig að á þessu leikur ekki lengur vafi. Maður hefði líka haldið að hæstv. ráðherra hefði látið það duga, sérstaklega þegar um stjórnarfrumvarp var að ræða.

Virðulegi forseti. Aðilum núverandi ríkisstjórnar hefur orðið tíðrætt um ábyrgð og vönduð vinnubrögð en það er einmitt málið að þeir hafa einungis rætt um þetta. Settar hafa verið siðareglur, úr því að þær voru nefndar áðan, fyrir ráðherra og starfsfólk Stjórnarráðsins, með leyfi forseta:

„1. hluti. Grunngildi stjórnsýslunnar

Óhlutdrægni

Stjórnarráð Íslands starfar á grundvelli laga í þágu almennings. Öll stefnumótun og ákvarðanataka mótast af sanngirni og virðingu fyrir lögum. Sérhagsmunir stýra ekki málsmeðferð né niðurstöðu mála.“

Ég hvet hæstv. umhverfisráðherra til að kynna sér (Forseti hringir.) þessar siðareglur. Við höfum heyrt ríkisstjórnina í tvö ár þræta fyrir það að hún standi í vegi fyrir atvinnuuppbyggingu í landinu. Nú hefur Hæstiréttur staðfest það að ráðherra umhverfismála hefur með einbeittum brotavilja (Forseti hringir.) komið í veg fyrir (Forseti hringir.) atvinnuuppbyggingu á þessu svæði. Það er ekki gott.