dómur Hæstaréttar um skipulag Flóahrepps.
Virðulegi forseti. Hér falla þung orð þegar verið er að saka opinber fyrirtæki sem starfa eftir lögum í landinu og sveitarstjórnarmenn kosna af almenningi á Suðurlandi um mútur. Og hæstv. forseti hefur ekkert um það að segja, ekki nokkurn skapaðan hlut. Hvað á það að þýða að menn tali með þessum hætti hér á Alþingi? Er það ekki þannig að orkufyrirtæki (Gripið fram í.) starfa eftir lögum? Þessi ræða hæstv. umhverfisráðherra var auðvitað stórundarleg fyrir utan það að ekkert svar kom við þeim spurningum sem fram voru bornar. Hlutverk ráðherra í ríkisstjórn er að fara að lögum. Telji menn lögin ekki vera fullnægjandi leggja menn fram lagafrumvarp og breyta lögunum. Menn fara ekki að segja sem svo að pólitísk sjónarmið gangi lögum framar, alveg sama um hvað verið er að tefla.
Við erum ekkert endilega sammála um það hér hvernig fara eigi í orkunýtingu, við getum ákveðið að vera ósammála um það, en með því getum við ekki gengið fram og talað við opinber fyrirtæki sem starfa eftir lögum og sveitarstjórnarmenn sem eru kosnir af almenningi og sagt að það sé bara allt í lagi eins og hér er gert. Þegar verið er að vitna í rannsóknarskýrsluna og hæstv. umhverfisráðherra nefndi viðskiptablokkir og ábyrgð þeirra í því hruni sem hér varð, er það sem sagt þannig að opinber orkufyrirtæki í eigu Íslendinga hafi með því að fara eftir íslenskum lögum valdið hér einhverju hruni? (Forseti hringir.) Er það þannig að þegar verið er að skipuleggja hreppi á Suðurlandi og menn fara eftir þeim lögum og leikreglum sem settar eru þá séu menn vændir um að þiggja mútur á Alþingi? Einhvern tíma hefði einhver hv. stjórnarandstöðuþingmaður haft uppi stór orð um aðra ráðherra. Það er kannski kominn tími til að fólk (Forseti hringir.) líti í eigin barm.