139. löggjafarþing — 72. fundur,  15. feb. 2011.

afbrigði um dagskrármál.

[15:30]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Svo bregðast krosstré sem önnur tré. Nú ber svo við að hv. þm. Þór Saari óskar eftir því að þingheimur veiti afbrigði fyrir tillögu sem hann hyggst flytja við það mál sem við erum að fara að ræða hér á eftir. Eins og kunnugt er hefur það verið stefna Hreyfingarinnar að samþykkja aldrei afbrigði fyrir því að taka mál á dagskrá. (Gripið fram í: Þetta er rangt.) En gott og vel.

Óskað er eftir því að Alþingi veiti afbrigði fyrir að taka mál á dagskrá en ég tel að tillagan á þskj. 833, um þjóðaratkvæðagreiðslu, fari í bága við grundvallaratriði í stjórnskipun landsins (Gripið fram í: Það hlýtur …) vegna þess að hún gerir í raun ráð fyrir því (Gripið fram í.) að taka 26. gr. stjórnarskrárinnar, um synjunarvald forsetans, og setja það inn í almenn lög. Þetta tel ég ekki standast.

Hitt er svo annað mál að það er mikilvægt og eðlilegt að pólitísk umræða geti farið fram um þá hugsun sem hér er að finna. Með vísan til þess (Forseti hringir.) styð ég það að þingheimur veiti afbrigði fyrir því að taka breytingartillöguna á dagskrá.