139. löggjafarþing — 72. fundur,  15. feb. 2011.

afbrigði um dagskrármál.

[15:32]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Þetta er nú óneitanlega svolítið kúnstug staða sem við erum komin í. En allt um það, við þingmenn Samfylkingarinnar munum styðja það að tillagan fari á dagskrá með afbrigðum eins og við gerum alla jafna hér í þingstörfunum. Ég vil fagna því ef einhver straumhvörf eru að verða í afstöðu manna til þess að liðka fyrir þingstörfum í framhaldinu.

Ég vil þó taka undir það með hv. þm. Árna Þór Sigurðssyni að þessi tillaga virðist við fyrstu sýn, ég ætla ekki að fullyrða of mikið, nær því að vera ekki þingtæk en þingtæk. En við skulum ræða hana þegar þar að kemur og greiða um hana atkvæði.