139. löggjafarþing — 72. fundur,  15. feb. 2011.

samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.

388. mál
[18:52]
Horfa

Kristján Þór Júlíusson (S) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ég verð að játa það fyrir hv. þingmanni að það er gríðarlegur veikleiki við allt þetta mál í raun hvernig stjórnarstefnan birtist okkur Íslendingum, það er mín skoðun, ég dreg enga dul á hana. Ég er í grunninn rasandi yfir þeim áherslum sem uppi eru í stjórnarsamstarfinu eða áhersluleysi hjá núverandi stjórnarmeirihluta væri raunar réttara að kalla það, sérstaklega í því sem lýtur að atvinnumálum. Allur bati í því styrkir stöðu okkar til að takast á við það sem kann að leiða af samkomulaginu sem hér liggur fyrir.

Af því að hv. þingmaður nefndi að þetta væri gríðarlegur umsnúningur hjá Sjálfstæðisflokknum í afstöðu hans vil ég enn og aftur mótmæla því. Við höfum alla tíð, eins og ég nefndi í ræðu minni, talað fyrir pólitískri lausn á málinu. Framsóknarflokkurinn kom að því og þar var líka stefnubreyting hjá Framsóknarflokknum í janúar 2010 þegar formenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins fóru til Haag í boði hæstv. fjármálaráðherra til viðræðna við Breta og Hollendinga.

Eðlilega taka mál einhverjum breytingum í vinnslu þeirra en ég lít svo á að með þeim fundahöldum og þeirri vinnu sem þarna var sett í gang ætluðu menn sér að reyna að vinna saman að því að leiða málið til lykta á pólitískum grunni. Viðsnúningurinn er því ekki endilega hjá Sjálfstæðisflokknum, án þess að ég ætli að fara í meting um það. Ég er bara að benda á að allir stjórnmálaflokkar á Alþingi eiga aðild að þessu samkomulagi.