samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.
Forseti. Ég þakka þingmanni svarið. Hann kom náttúrlega að kjarna málsins að hér er um að ræða gjaldeyri. Þetta eru ekki okkar íslensku krónur sem við getum bara prentað. Þetta eru fjármunir sem eru teknir út úr hagkerfinu.
Mig langar að spyrja þingmanninn hvort hann telji fært að koma þessari skuld eða þessari skuldbindingu yfir á fjármálafyrirtækin með því að láta taka þá fjármuni sem þeim ber að greiða samkvæmt frumvarpi efnahags- og viðskiptaráðherra inn í Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta sem er 1% af innstæðum ef frumvarpið verður samþykkt og þeir fjármunir eða hluti þeirra fari í að greiða þetta. Hefur hann kynnt sér þessar tillögur og hvað finnst honum um þær?