139. löggjafarþing — 72. fundur,  15. feb. 2011.

samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.

388. mál
[21:37]
Horfa

efnahags- og viðskiptaráðherra (Árni Páll Árnason) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hér var ekki rétt eftir haft. Ég taldi þetta vera hina bestu niðurstöðu sem hægt væri að ná með samningum. Ef menn gefa sér að semja um þetta mál liggur fyrir það mat Lees Buchheits, formanns samninganefndarinnar, sem ég held að við getum öll í þessum sal verið sammála um að er hæfur maður og hefur til þess sérþekkingu, að þetta sé eins langt og komist verði í samningum. Ég held að það eigi að una við að mat og við eigum að standa við það að samþykkja samningaleiðina, eins og forustumenn allra flokka hafa talað fyrir einhvern tíma á undanförnu ári þótt þeir standi ekki allir að því núna. Menn hafa allir talað með því að ganga samningaleiðina á einhverjum tímapunkti og ég held að við eigum að ganga samningaleiðina alla leið eins og ég hef viljað gera frá upphafi. Ég er ánægður með þennan samning. Ég er sammála því mati að lengra verði ekki komist og ég tel að vel hafi verið að verki staðið af hálfu samninganefndarinnar.