samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.
Virðulegi forseti. Hér kemur það fram að hæstv. ráðherra er afar ánægður með þennan samning. Ég vísaði í það að ráðherrann er lögfræðimenntaður. Finnst honum mikið réttlæti í því að setja þetta á íslenska skattgreiðendur, þessa ímynduðu skuld, þennan Icesave-draug? Hvers vegna hræðist ráðherrann dómstólaleiðina? Hvers vegna er verið að loka á það með þessu frumvarpi að Bretar og Hollendingar komi hér og sæki málið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur? Og hver er ástæðan fyrir því að mati ráðherrans að nú er búið að framlengja lokagreiðsluárið frá 2030 í fyrri samningum í 2046? Hver er ástæðan fyrir því að búið er að lengja svo í þessu að börn sem fæðast í dag verða orðin 35 ára þegar lokagreiðslan verður? Ég vil fá skýr svör. Hræðist hinn lögfræðimenntaði ráðherra dómstóla?