samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.
Virðulegi forseti. Ég hræðist aldrei dómstóla, enda held ég að þeir hafi á endanum alltaf rétt fyrir sér. (Gripið fram í: Já!) Ég held hins vegar að niðurstaða þeirra lögfræðinga sem lögðu mat á það mál fyrir fjárlaganefnd, að það séu umtalsverðar hættur samfara dómstólaleið í þessu máli, sé rétt og það sé veruleg hætta á samningsbrotamáli á hendur okkur vegna brota á EES-samningnum. Það er þetta áhættumat sem veldur því að ég tel skynsamlegra að semja. Mér þykir það nokkur fífldirfska að tala af léttúð um hættuna á að tapa dómsmáli. Það gerir enginn sem metur staðreyndir þessa máls af einhverri yfirvegun því að hættan stendur enn þá opin að við gætum þurft að greiða enn meiri fjárhæðir en við erum þó að greiða núna. Hættan er raunveruleg. Hvort sem menn meta hana mikla eða litla er hún raunveruleg og það er til að verjast þeirri hættu (Forseti hringir.) sem samningaleiðin er skynsamleg leið.