samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.
Virðulegi forseti. Eins og ég rakti í ræðu minni tel ég að ekki eigi að rugla saman innstæðutryggingarkerfum og uppgjöri þessarar skuldar og að það sé ekki eðlilegt að blanda þessu tvennu saman. Það er hægt að leggja skatt á fjármálafyrirtæki til að fjármagna þessa endurgreiðslu en ég er ósammála því að nýr innstæðutryggingarsjóður standi undir þessu eða að núverandi nýendurreistum bönkum með nýjum eigendum verði gert að greiða þennan reikning sérstaklega. Það á þá að leggja skatta á þá eða þær atvinnugreinar eftir almennum skattlagningarviðmiðum en ekki að ætla innstæðutryggingarsjóðnum sérstaklega að fjármagna þetta um aldur og ævi.
Varðandi fyrri spurningar hv. þingmanns vildi ég bara undirstrika að það er mikilvægt að þróa þetta innstæðutryggingarkerfi áfram á þann veg að það sé raunverulega hægt að vinna það þvert á landamæri þannig að það verði sameiginlegt innstæðutryggingarkerfi um alla Evrópu. Við munum koma sjónarmiðum (Forseti hringir.) þar að lútandi á framfæri núna í álitsumleitan sem stendur yfir á vegum Evrópusambandsins (Forseti hringir.) um bankaþjónustu þvert á landamæri. Hún mun standa til loka mars og það verður athyglisvert (Forseti hringir.) að sjá hvað kemur út úr því.