139. löggjafarþing — 72. fundur,  15. feb. 2011.

samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.

388. mál
[23:06]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni, þetta er nokkuð sem við eigum ekki að greiða. Ég hef aldrei nokkurn tímann fundið rökstuðning fyrir því að við eigum að greiða þetta, en við vorum kúguð til þess á tímabili og við erum kúguð til þess enn þá. Það er hugsanlegt að ef við segjum nei verði reynt að kúga okkur aftur, við skulum búa okkur undir það. Það liggur bara í eðli þessara svokölluðu vinaþjóða sem eru annað en vinir manns persónulega.

Ég á alveg von á því en ég hef alltaf sagt að við eigum ekki að borga þetta. Þeir búast við því að eitthvað geti gerst með þrotabúið, þeir reikna eins og ég með því að eitthvað slæmt gerist. Stundum getur eitthvað gott gerst og stundum slæmt, þess vegna kasta upp teningi, stundum kemur upp sexa, stundum kemur upp einn. Þeir reikna með því að ef eitthvað slæmt skyldi henda Íslendinga geti þeir kreist okkur allan þennan tíma til að ná í evrurnar sínar og pundin. (Gripið fram í.)