samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.
Virðulegi forseti. Það er rétt að ræða líkindin sem hv. þingmaður hefur gjarnan gert hér og vil ég þakka honum fyrir ágæta ræðu um þessi mál og nálgun hans á þau. Auðvitað er mikil óvissa á alla vegu í þessu ólukkans máli. Við vitum hins vegar eitt, við vitum að við eigum ekki að borga þetta, það er a.m.k. fasti sem við þekkjum. Okkur ber engin skylda til þess. Við vitum líka að það eru, kannski ekki 0% líkur en nánast engar líkur á að við verðum dæmd til að greiða eitthvað meira en samningurinn kveður á um, það eru mjög litlar líkur á að það verði gert.
Mig langar að spyrja hv. þingmann hvernig hann meti stöðu Íslands næstu áratugina ef þetta fer einhvern milliveg. Segjum að við lendum í því að sitja uppi með 100 milljarða, hvaða líkur eru á því að íslenska ríkið og íslenska þjóðin geti staðið undir því ef við horfum til efnahagsmálaástandsins hjá okkur í dag? Við verðum að blása til sóknar, sú ríkisstjórn sem nú situr ætlar sér ekki að gera það, hún virðist vera upptekin við eitthvað annað, þar á meðal að ganga í Evrópusambandið sem á allan huga hennar. Það er ágætt að hv. þingmaður nefndi það áðan að hnefarétturinn virðist duga í alþjóðasamskiptum. Það er vitanlega Evrópusambandið sem er búið að slá og kýla okkur niður hvað eftir annað.
Mig langar að spyrja hv. þingmann hversu há skuldin getur verið þannig að við ráðum við hana að hans mati. Dómar eru að falla núna um lánin í bönkunum. Mun ríkið þurfa að setja tugmilljarða inn í bankana til að halda þeim gangandi? Hvað þýðir það fyrir ríkissjóð? Þetta eru spurningar sem við þurfum að velta fyrir okkur og þetta eru upplýsingar sem (Forseti hringir.) komu fram í dag.