139. löggjafarþing — 72. fundur,  16. feb. 2011.

samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.

388. mál
[00:32]
Horfa

utanríkisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurði Kára fyrir glæsilegu ræðu. Oft hef ég haldið verri ræður en þetta.

Ég hef eina spurningu til hv. þingmanns. Hann vill láta rannsaka Icesave-málið. Ekki leggst ég á móti því. Rannsökum allt í tætlur. Hv. þingmaður sagði að búið væri að rannsaka málið fram að hruni og hann vill láta taka upp rannsókn á því eftir að samningurinn hinn fyrsti var gerður. Er ekki eitthvað fleira sem þarf þá að rannsaka ef menn ætla á annað borð að gera það? Þarf ekki að rannsaka hvað gerðist þar á milli? Var það ekki þannig að forustumaður í Sjálfstæðisflokknum setti stafi sína undir samkomulag sem var það allra versta af því öllu sem gert hefur verið? Bíddu við, í umboði hverra var þá verið að gæta hagsmuna? Ekki mínu. Ég sat í ríkisstjórninni. (Gripið fram í.) Ekki var þetta borið undir ríkisstjórnina.

Síðan gerðist það, án þess að aðrir ráðherrar vissu, að verið var að gera sams konar samkomulag við Breta. (Forseti hringir.) Þá var það starfandi utanríkisráðherra sem reif ræfilinn af Sjálfstæðisflokknum upp úr því svelli (Forseti hringir.) og kom í veg fyrir það. Þarf ekki að rannsaka það? Það er mín hógværa spurning.