139. löggjafarþing — 72. fundur,  16. feb. 2011.

samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.

388. mál
[00:38]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Nú höfum við þingmenn talað um þetta stóra mál í allt kvöld og komið er fram á nótt. Klukkuna vantar tuttugu mínútur í eitt. Ég spyr því forseta: Hvernig stendur á því að við höfum ekki séð í allt kvöld höfuðpaurinn í málinu, hæstv. fjármálaráðherra? Af hverju er hann ekki við þessa umræðu og sýnir málinu, þinginu og okkur þingmönnum þá kurteisi að vera hér?

Hér kemur hæstv. utanríkisráðherra, reyndar í skjóli nætur, laumast inn þveginn og strokinn, nýbúinn í sturtu líkt og þegar bankahrunið varð, geislar af ánægju og gleði yfir þessu máli, og er mjög sérstakt að menn skuli vera yfirleitt ánægðir með þetta mál. Hæstv. fjármálaráðherra á að sjálfsögðu að vera hér, hann ber ábyrgð á þessu máli — hann á að vera hér.

(Forseti (ÁRJ): Forseti vill svara hv. þingmanni. Hæstv. fjármálaráðherra er í húsinu og það er verið að sækja hann.)

Virðulegi forseti. Ég var að klára ræðu mína um fundarstjórn. Ég vil …

(Forseti (ÁRJ): Hv. þingmaður gerði athugasemd um fundarstjórn og óskaði eftir að fjármálaráðherra kæmi. Forseti hefur þegar gert ráðstafanir og hæstv. ráðherra er í húsinu og er kominn í salinn.)