samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.
Virðulegi forseti. Fyrir okkur sem höfum verið með fjármuni borgaranna milli handanna við að reka sveitarfélög eru þetta vitanlega gríðarlegar upphæðir. Við horfum fram á niðurskurð til heilbrigðismála, ef ég man rétt, upp á um 4 milljarða í núgildandi fjárlögum og annað eins er væntanlega fram undan á næsta ári. Vextirnir sem hæstv. fjármálaráðherra vill fá víxil fyrir á þessu ári eru um 26 milljarðar út af þessu Icesave-máli öllu saman.
Hvað getum við gert fyrir alla þá fjármuni sem þeir sem vilja samþykkja þetta Icesave-mál ætla að setja í það? Það er alveg ótrúlega mikið. Við getum sett atvinnulífið af stað að miklu leyti. Við getum hugsanlega fjármagnað þau orkuverkefni sem nú er vandamál að framkvæma vegna ofbeldis sem þessi ríki beita í fjárfestingarbönkum sem eru pólitískt skipaðir eins og Evrópski fjárfestingarbankinn. Af hverju í ósköpunum berjum við ekki í borðið og segjum frekar að við skulum nota þessa peninga sjálf? Notum þessa milljarða. Komum hér atvinnulífinu af stað. Setjum nokkra milljarða í Búðarhálsvirkjun. Setjum hundruð milljóna í nýsköpun og allt þetta, en geymum að borga Icesave. Tryggjum heilbrigðisreksturinn áfram. Nei, það á að auka við vandann. Það á að auka niðurskurðinn og skattheimtuna með því að setja þessar byrðar yfir á íslensku þjóðina. Þannig er það og þannig verður það að í fjárlögum næsta árs og næstu ára þarf að gera ráð fyrir einhverjum útgjöldum vegna þessara Icesave-samninga. Það mun bitna á sveitarfélögunum, það mun bitna á fólkinu, (Forseti hringir.) á íbúunum vegna þess að það þarf að skera niður eða hækka skatta fyrir þennan óskapnað.