139. löggjafarþing — 72. fundur,  16. feb. 2011.

samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.

388. mál
[01:35]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég get ekki annað en þakkað fyrir þessa umræðu og undirstrikað það sem ég sagði áðan og ítrekað að ég tel rétt að þessar tillögur fái hér framgang, að við greiðum um þær atkvæði. Vonandi sjá þingmenn sóma sinn í því að veita þjóðinni það að greiða um þetta atkvæði. Það eru sjálfsagt nærri 28.000 manns búnir að skrá sig núna fyrir því og óska eftir því. Okkur væri mikill sómi að því að taka þessa ákvörðun. Í þessum stól er oft rætt um lýðræði, þjóðina, fólkið í landinu o.s.frv. Þeir sem hvað hæst og mest tala um það eru þeir flokkar sem nú eru í ríkisstjórn. Nú hafa þeir tækifæri til að sýna í verki að þeim er alvara í því að treysta þjóðinni fyrir vissum málum. Við getum haft alls konar skoðanir á því hvenær á að fara með mál í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta mál er búið að fara eina umferð þar og því tel ég rétt að það verði klárað með sama hætti.

Frú forseti. Það er vitanlega sorglegt að þegar klukkan er langt gengin í tvö að nóttu erum við að ræða þetta risamál. Við erum hérna eins og stundum er sagt „í skjóli nætur“ að ræða mál sem mun líklega varða fólkið í landinu, börnin, í mörg ár. Við erum að hraða málinu í gegnum þingið, þ.e. stjórnarmeirihlutinn — og af hverju er verið að því þegar búið er að sanna að biðin hefur sparað okkur tugi eða hundruð milljarða? Jú, það er vegna þess að þjóðin er vöknuð, þessi þjóð sem stjórnarflokkarnir ákalla svo oft er nú vöknuð, er á kjósum.is að skrá sig til að óska eftir því að fá að greiða um þetta atkvæði, og þá erum við að pukrast með þetta mál (Forseti hringir.) hér í þinginu.