samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.
Virðulegi forseti. Er hægt að fá frið til að fara í andsvar við hv. þm. Gunnar Braga Sveinsson fyrir þeim sem stendur þarna í gættinni? Það er engu líkara en hér starfi tveir forsetar á þessum kvöldfundi. Þessi æsingur í málinu er til orðinn vegna þess að við þurfum að tala inn í nóttina. Það er alveg með ólíkindum að upplifa þetta. Ég veit að Samfylkingin og Vinstri grænir vilja hafa lýðræði á góðum stundum, sérstaklega ef það eru orð í blaði á stefnuskrá flokkanna, en þegar reynir á lýðræðið á borði en ekki í orði fer að kárna gamanið. Við skulum sjá til í nafnakalli á morgun hverjir það eru sem vilja að málið fari í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þingmenn Framsóknarflokksins hafa staðið sína plikt í þessu máli. Þingmenn Framsóknarflokksins hafa reynt að koma vitinu fyrir ríkisstjórnina, þingmenn Framsóknarflokksins standa með þjóð sinni. Kröfurnar eru óásættanlegar. Setja á óútfylltan tékka á herðar þjóðarinnar, á herðar ófæddum börnum. Síðasti gjalddaginn er eftir 35 ár. Guð hjálpi þeim sem samþykkja þennan samning án dóms og laga. Gleymum því ekki, án dóms og laga. Það verður fróðlegt að fylgjast með atkvæðagreiðslunni á morgun varðandi þjóðaratkvæðagreiðsluna. Fari frumvarpið í gegnum þingið stólum við á að forsetinn beiti 26. gr. stjórnarskrárinnar og þjóðin fái málið til sín á nýjan leik því að Icesave-samningurinn er hjá þjóðinni eftir 7. september 2009 þegar honum var hafnað með 98:2. Við skulum hafa það á hreinu.