139. löggjafarþing — 73. fundur,  16. feb. 2011.

samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.

388. mál
[14:08]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Þjóðaratkvæðagreiðslur eru þjóðþrifamál þegar bera þarf undir þjóðina stór hagsmunamál til framtíðar eins og t.d. að setja ákvæði um auðlindir landsins í þjóðareign í stjórnarskrá og þá ákvörðun hvort hagsmunum þjóðarinnar sé betur varið innan eða utan ESB. Lánasamningar, fjárreiður ríkisins og samningar um skuldaskil milli þjóða eru ekki þess eðlis að fara með í þjóðaratkvæðagreiðslu að mínu mati. Þar verða lýðræðislega kjörnir fulltrúar þjóðarinnar að axla þá ábyrgð sem þeir eru kosnir til.

(Forseti (ÁRJ): Þingmaðurinn segir?)

Ég segi nei.