139. löggjafarþing — 73. fundur,  16. feb. 2011.

samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.

388. mál
[14:12]
Horfa

Ólöf Nordal (S):

Virðulegi forseti. Ágætu þingmenn. [Kliður í þingsal.] Er hægt að hafa hljóð í salnum?

Forsaga Icesave-málsins er afar sorgleg og óvenjuleg. Í tvígang hefur þurft að berja á bak aftur og reka til föðurhúsanna fráleita samninga hæstv. fjármálaráðherra sem stefnt hefðu þjóðarbúinu í voða. Í síðara skiptið kom þjóðin afgerandi að því máli eftir synjun forseta.

Í desember 2009 lögðum við sjálfstæðismenn fram tillögu um þjóðaratkvæði um þetta óvenjulega mál. Öll vitum við eftirsöguna. Ég tel í ljósi forsögu málsins að rétt sé að þjóðin fái tækifæri til að segja skoðun sína og ég segi já.